
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda meginvöxtum bankans óbreyttum í 8,00%. Ákvörðunin var tekin einróma en nefndin telur nauðsynlegt að viðhalda þéttu peningalegu taumhaldi þar sem verðbólga er enn of mikil. Verðbólga mældist 5,9% í október þótt ný spá Seðlabankans geri ráð fyrir að hún hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári.
Verðbólga hefur aukist frá því í sumar
Verðbólga mældist 5,9% í október og hefur farið vaxandi frá því í sumar. Undirliggjandi verðbólga hefur hins vegar haldist nokkuð stöðug, eða í liðlega 4%.
Alþjóðlegt eldsneytisverð hefur haldist hátt og stuðlað að verðbólguþrýstingi. Á móti kemur að hægt hefur enn frekar á vexti innlendrar eftirspurnar og hagvaxtarhorfur hafa versnað.
Seðlabankinn telur að minni eftirspurn og hægari hagvöxtur muni stuðla að hjöðnun verðbólgu á komandi misserum.
Spáir hraðri hjöðnun verðbólgu á næsta ári
Ný þjóðhagsspá Seðlabankans gerir ráð fyrir að verðbólga hjaðni tiltölulega hratt á árinu 2027, í samræmi við það sem bankinn spáði í ágúst.
Vísbendingar eru um að áhrif hækkunar eldsneytisverðs á annað vöru- og þjónustuverð hafi verið minni en upphaflega var óttast.
Þá hafa verðbólguvæntingar lækkað frá fyrri mælingum. Einnig náðist samkomulag á vinnumarkaði fyrr í haust um að gildandi kjarasamningum yrði ekki sagt upp.
Þessi þróun dregur úr hættu á frekari verðbólguþrýstingi, þótt verðbólga sé enn töluvert yfir markmiði Seðlabankans.
Óvissa um alþjóðlega verðlagsþróun
Þrátt fyrir vísbendingar um batnandi verðbólguhorfur telur peningastefnunefnd að óvissa sé enn töluverð.
Sérstaklega er bent á þróun verðlags á alþjóðamörkuðum og möguleg áhrif áframhaldandi kostnaðarhækkana á innlent verðlag.
Ekki sé hægt að útiloka að hækkanir á aðföngum og öðrum kostnaðarliðum eigi enn eftir að skila sér út í verðlag vöru og þjónustu.
Verðbólguvæntingar eru jafnframt enn yfir verðbólgumarkmiði bankans.
Áframhaldandi aðhald í peningamálum
Peningastefnunefnd telur því ekki tímabært að lækka vexti þrátt fyrir versnandi hagvaxtarhorfur og spár um hjöðnun verðbólgu.
Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða áfram 8,00%.
Allir nefndarmenn studdu ákvörðunina.
Fram kemur í yfirlýsingu nefndarinnar að næstu ákvarðanir um vexti muni ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.
Hér að neðan má horfa á beint streymi frá fundi Peningstefnunefndar þar sem farið er yfir ákvörðunina.
