
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmann og varaþingmann og tónleikahaldara tónleikanna Bergmáls sem haldnir voru á Þingvöllum um helgina í síðdegisútvarpinu í dag, um framkvæmd viðburðarins sem vakti mikla athygli um land allt. Þar kom fram að undirbúningurinn hefði staðið yfir í tæpt ár eða frá því í ágúst á árinu 2025 og verkefnið hefði reynst eitt flóknasta og umfangsmesta sem Jakob hefur ráðist í á sviði tónleikahalds á Íslandi. Arnþrúður skoraði á Jakob að gera þennan viðburð að árlegum viðburði. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Tæpt ár fór í undirbúning
Jakob Frímann sagði að undirbúningur Bergmáls hefði hafist löngu áður en tónleikarnir fóru fram. Fljótlega hefði orðið ljóst að viðburður á Þingvöllum kallaði á umfangsmikla samvinnu fjölmargra aðila og vandlega skipulagningu.
Fundir með fulltrúum Þingvallaþjóðgarðs, tækniaðilum, styrktaraðilum, öryggis- og skipulagsaðilum hefðu staðið yfir mánuðum saman. Á lokasprettinum hefðu fundir oft verið haldnir nokkrum sinnum í viku eins og með þjóðgarðsverði. Að sögn Jakobs var verkefnið bæði tímafrekt og krefjandi, ekki síst vegna sérstöðu þjóðgarðsins þar sem sérstakar reglur og verndarsjónarmið gilda um alla starfsemi. Markmiðið hafi frá upphafi verið að skapa viðburð sem samræmdist náttúru og sögu staðarins án þess að ganga á þau verðmæti sem Þingvellir hafa að geyma.
Þingvellir henta vel til stórviðburða
Í viðtalinu kom fram að skipuleggjendur hefðu lagt mikla áherslu á að dreifa álagi um svæðið. Tónleikasvæði, þjónustusvæði og veitingaaðstaða voru aðskilin þannig að gestir dreifðust betur um þjóðgarðinn. Jakob benti á að Þingvellir taki daglega á móti þúsundum ferðamanna og að svæðið geti tekið við fjölmennum viðburðum ef vel sé að verki staðið. Hann taldi jafnframt mikilvægt að almenningur upplifi þjóðgarðinn sem lifandi samkomustað þjóðarinnar en ekki eingöngu sem friðað svæði sem fáir þori að heimsækja.
Glæsileg viðbrögð tónleikagesta
Arnþrúður vísaði í umræðunni til þeirra fjölmörgu jákvæðu viðbragða sem birst höfðu frá tónleikagestum og á samfélagsmiðlum. Þar hefði meðal annars verið lofað hversu vel hefði tekist að samræma stórkostlega tónleika, útivist, menningu og náttúruupplifun á einum sögufrægasta stað landsins.
Vel skipulögð umferðarstjórnun
Mikil áhersla var lögð á samgöngur og öryggismál. Jakob rifjaði upp vandræði sem urðu við hátíðarhöld á Þingvöllum árið 1994 og sagði þá reynslu hafa verið mikilvæga áminningu við undirbúning Bergmáls. Dagskráin var skipulögð með það að markmiði að dreifa komum og brottförum gesta yfir langan tíma. Tónleikarnir hófust snemma dags á laugardegi og lokaatriðum var raðað þannig að mannfjöldinn færi smám saman af svæðinu í stað þess að allir færu samtímis.
Að sögn Jakobs gekk sú áætlun vel eftir. Umferð dreifðist jafnt og ekki komu upp þau vandamál sem margir höfðu óttast fyrirfram.
Ánægja gesta stærsti mælikvarðinn – Jölull söngvari Kaleo sló í gegn
Arnþrúður lýsti því í þættinum hvernig Bergmál hefði skapað sérstaka þjóðhátíðarstemningu bæði meðal þeirra sem mættu á svæðið og þeirra sem fylgdust með í Sjónvarpi Símans. Viðburðurinn hafi vakið mikla athygli og að margir hefðu lýst honum sem einstökum menningarviðburði. Jökull Júlíusson söngvari Kaleo hefði gjörsamlega hitt þjóðina beint í mark með fallegri framkomu sem hafi endurspeglað ást hans á landi og íslensku þjóðinni.
Jakob sagði að þegar upp væri staðið skipti ánægja gesta og þátttakenda mestu máli. Viðbrögð frá almenningi, listamönnum og samstarfsaðilum bentu til þess að markmiðum verkefnisins hefði verið náð.
Skorað á Jakob Frímann í beinni
Í þættinum skoraði Arnþrúður á Jakob að huga að því að gera viðburðinn að árlegum viðburði á þingvöllum og nefndi að Helgi Björns væri kærkominn kandidat í næsta verkefni.
Hann kvaðst þegar hafa fengið fjölmargar áskoranir um að slíkur viðburður yrði endurtekinn, þótt hann væri sjálfur enn að jafna sig eftir það mikla álag sem fylgdi framkvæmdinni.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun og lög með Kaleo, í spilaranum hér að neðan.
