
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Bergþór Ólason, þingmann Miðflokksins, í síðdegisútvarpinu, um ræðu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, hjá Sameinuðu þjóðunum og hvernig írönsk stjórnvöld hafa nýtt ummæli hennar og mynd á auglýsingaskiltum í Teheran. Bergþór sagði Þorgerði Katrínu orðna klappstýru klerkastjórnarinnar á slíkum auglýsingaspjöldum og utanríkisráðherra í þeirri stöðu þyrfti að hugsa sinn gang. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Skiltin skaða stöðu Íslands gagnvart vinaþjóðum
Arnþrúður vakti athygli á því að írönsk stjórnvöld hefðu tekið ummæli Þorgerðar Katrínar upp í sína opinberu framsetningu og spurði hvaða áhrif það hefði á ímynd Íslands þegar mynd utanríkisráðherrans birtist á götuskiltum í Teheran.
Bergþór sagðist vona að sem fæstir tækju eftir þessu en bætti við að vinaþjóðir Íslands sæju hvað væri að gerast. Hann taldi framsetninguna ekki vera Íslandi til bóta.
Framganga Þorgerðar gönuhlaup
Bergþór gagnrýndi Viðreisn einnig harðlega og sagði sérhagsmuni flokksins of oft ráða för fremur en almannahagsmuni. Hann sagði framgöngu Þorgerðar Katrínar í þessu máli vera dæmi um það og vera gönuhlaup.
Hann telur ræðu hennar hjá Sameinuðu þjóðunum hafa sett Ísland í óþarfa og óheppilega stöðu. Þegar klerkastjórnin í Íran taki orð íslensks utanríkisráðherra upp á auglýsingaskilti sé ekki lengur um venjulega pólitíska umræðu að ræða heldur mál sem snerti beint stöðu Íslands út á við.
Bandaríkin og NATO eiga að vera fremst
Arnþrúður spurði hvernig meginstefna Íslands í utanríkismálum ætti að vera á þeim óvissutímum sem nú ríktu og hvort ríkisstjórnin hefði nægilega skýra forgangsröðun gagnvart NATO, Bandaríkjunum, EES og öðrum ríkjum.
Bergþór sagði varnarsamninginn við Bandaríkin og aðild Íslands að NATO eiga að vera fremst í varnar- og öryggismálum. Hann taldi þau skilaboð sem Marco Rubio og aðrir bandarískir ráðamenn hefðu flutt Evrópu, vera jákvæð og uppbyggileg og Evrópuríkin þyrftu að taka meiri ábyrgð á eigin stöðu.
Þorgerður Katrín fór illa út af sporinu
Hann sagði Ísland jafnframt þurfa að standa fastar á eigin hagsmunum innan EES og nýta þær heimildir sem samningurinn veitir þegar hagsmunir landsins séu undir.
Framganga utanríkisráðherra á alþjóðavettvangi skipti því miklu. Bergþór telur Þorgerði Katrínu hafa farið illa út af sporinu þegar ræða hennar endaði sem hluti af áróðursframsetningu klerkastjórnarinnar í Íran.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
