
Víðtæk bilun í Microsoft 365 hefur raskað tölvupósti og samskiptum fyrirtækja og opinberra stofnana víða um heim frá því síðdegis í gær. Truflanirnar hafa einkum bitnað á Outlook en einnig haft áhrif á Teams, SharePoint og Copilot. Tilkynningar um vandamál bárust frá 74 löndum og landsvæðum samkvæmt vöktunarvefnum Downdetector.
Tafir á tölvupósti og truflanir á fundaboðum
Bilunin hefur einkum áhrif á Exchange Online, póstþjónustuna sem Outlook tengist. Sumir notendur hafa átt í erfiðleikum með að opna pósthólfin sín og tafir hafa orðið á afhendingu tölvupósts. Í Teams hafa komið upp vandamál við að senda fundaboð og breyta fundartímum. Truflanir hafa einnig orðið á deilingu skráa með utanaðkomandi í SharePoint og á virkni Copilot.
Opinberar stofnanir í Ástralíu, Japan og Bandaríkjunum hafa orðið fyrir truflunum. Kauphallarfyrirtækið Euronext hefur einnig greint frá erfiðleikum í tölvupóstsamskiptum við skráð félög.
Microsoft vinnur að því að koma tölvupósti til skila
Samkvæmt Microsoft hættu netþjónar að svara beiðnum þegar ferli sem kemur á öruggum tengingum réð ekki við álagið. Fyrirtækið rannsakar hvað kom biluninni af stað og hefur ekki fundið vísbendingar um netárás.
Í stöðutilkynningu í morgun greindi Microsoft frá því að þjónustan væri smám saman að komast í lag. Fyrirtækið hefur lengt í 48 klukkustundir þann tíma sem kerfið reynir að koma töfðum tölvupósti til skila.
Tölvupóstur raskast hjá íslenskum stéttarfélögum
VR tilkynnti á föstudagsmorgun að félagið gæti hvorki sent né tekið við tölvupósti vegna bilunarinnar. Félagsfólk getur haft samband í síma 510 1700 eða í vefspjalli félagsins.
Verkalýðsfélag Vestfirðinga greindi einnig frá því að starfsfólk skrifstofunnar ætti í erfiðleikum með að komast í tölvupóst. Félagið beinir því til félagsfólks að hringja í síma 456 5190 með erindi meðan á trufluninni stendur. Heildarumfang bilunarinnar hér á landi liggur enn ekki fyrir en ljóst er þó að fleiri en verkalýðsfélaög hafa orðið fyrir truflun vegna þessa.
