Bjargaði götumynd Laugavegar og lífríki Elliðaánna

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ólaf F. Magnússon, lækni, fyrrverandi borgarstjóra og ljóða og lagahöfund, um baráttu hans gegn stórbyggingum í gamla miðbæ Reykjavíkur og fyrir vernd Elliðaánna þegar hann var borgarstjóri en Ólafur er mikill umhverfis og ættjarðarvinur. Ólafur sagði afstöðu sína hafa komið í veg fyrir að stórar byggingar röskuðu götumynd Laugavegar og að hesthúsabyggð fyrir 800 hesta yrði reist á bökkum Elliðaánna. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Vildi endurreisa húsin í gamalli mynd

Arnþrúður rifjaði upp að margir tengdu borgarstjórnarferil Ólafs við vernd gamalla húsa við Laugaveg og annars staðar í miðborginni þegar hann var borgarstjóri. Á þeim tíma hefði fólk óttast að eldri hús yrðu rifin og stórar nýbyggingar reistar í staðinn.

Ólafur nefndi brunann í miðborginni árið 2007 og sagðist hafa látið borgina kaupa lóðina til að tryggja að húsin yrðu endurreist í svipaðri mynd. Sú ákvörðun hefði reynst vel og varðveitt yfirbragð gömlu miðborgarinnar.

Hann sagðist ekki hafa verið andvígur öllum breytingum heldur aðeins viljað að þær væru til góðs. Hann vildi halda í það sem hefði sögulegt og menningarlegt gildi og þróa borgina með virðingu fyrir eldri byggð.

Stórbyggingar hefðu tekið sólina

Áform hefðu einnig verið uppi um umfangsmikla hótelbyggingu við Laugaveg. Ólafur lýsti henni sem stórri samfelldri byggingu sem hefði breytt neðri hluta götunnar verulega og tekið sólarljós frá svæðinu.

Hann sagðist hafa staðið einn gegn áformunum um tíma. Stórbyggingin hefði orðið eins konar veggur yfir neðri hluta Laugavegar og eyðilagt þá götumynd sem nú væri eitt helsta aðdráttarafl miðborgarinnar.

Önnur stór framkvæmd var fyrirhuguð að reisa Listaháskóla við Frakkastíg og hefði sú bygging náð niður að Hverfisgötu. Ólafur sagði hana hafa raskað samfelldri götumynd frá Frakkastíg niður að Bankastræti.

Mikil andstaða hefði verið við afstöðu hans en áformin gengu ekki eftir í þeirri mynd sem lagt hafði verið upp með. Hann sagði fólk nú njóta þess að geta gengið um svæðið þar sem eldri hús og mannlegur mælikvarði hefðu varðveist.

Hesthúsabyggð fyrir 800 hesta við Elliðaár

Eftir að borgarstjóratíð Ólafs lauk komu fram áform um hesthúsabyggð fyrir 800 hesta á bökkum Elliðaánna neðan Breiðholtsbrautar og félagssvæðis Fáks.

Hann sagði sérfræðinga hafa verið sammála um að köfnunarefnismengun frá hesthúsunum og haugstæðum þeim tengdum gæti borist í árnar. Mengunin hefði getað haft alvarleg áhrif á lífríki þeirra.

Baráttan gegn framkvæmdinni varð að sögn Ólafs mjög hörð. Hann hafði frá því hann tók sæti í borgarstjórn árið 1990 lagt áherslu á að útivistarsvæði og náttúruperlur innan borgarinnar fengju að vera í friði.

Elliðaárnar væru ekki aðeins vatnsföll heldur mikilvæg náttúru- og útivistarsvæði í hjarta Reykjavíkur. Að setja umfangsmikla hesthúsastarfsemi á bakka þeirra hefði stefnt þessari stöðu í hættu.

Ólafur taldi sig hafa átt stóran þátt í að stöðva áformin. Með því hefði verið komið í veg fyrir mengunarhættu og Elliðaárnar áfram varðveittar sem ein helsta náttúruperla borgarinnar.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila