Björgvin Halldórsson er látinn

Björgvin Helgi Halldórsson, einn þekktasti og áhrifamesti tónlistarmaður þjóðarinnar, er látinn. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu í morgun. Hann var 74 ára.

Björgvin fæddist 16. apríl 1951 í Hafnarfirði og hóf ungur að hasla sér völl í íslensku tónlistarlífi. Hann steig fyrst fram með hljómsveitinni Bendix en vakti fljótt athygli þegar hann hóf að syngja með hljómsveitinni Flowers. Síðar söng hann meðal annars með Ævintýri, Brimkló, Ðe lónlí blú bojs og HLH-flokknum. Hann starfaði einnig sem plötusnúður á sínum yngri árum.

Langur og farsæll tónlistarferill

Á ferli sínum flutti og hljóðritaði Björgvin fjölda laga, bæði frumsamin og tökulög, sem nutu mikilla vinsælda. Meðal þekktustu laga hans eru Þú komst með jólin til mín, Gullvagninn og Þó líði ár og öld, sem skipa fastan sess í íslenskri tónlistararfleifð.

Hann var snemma viðurkenndur fyrir hæfileika sína og var valinn poppstjarna ársins árið 1969. Árið 1995 fór hann fyrir Íslands hönd í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva með lagið Núna. Dóttir hans, Svala Björgvins, fetaði í fótspor hans og keppti fyrir Íslands hönd árið 2017.

Áberandi í fjölmiðlum og á sviði

Auk söngferils síns starfaði Björgvin sem þulur og varð landsmönnum kunnug rödd Stöðvar 2. Hann setti einnig mark sitt á íslenskt jólatónlistarlíf með tónleikum sínum Jólagestir Björgvins, sem nutu mikilla vinsælda ár hvert og voru haldnir í síðasta sinn árið 2024. Þá stýrði hann sjónvarpsþáttunum Jólastjarna Björgvins þar sem ungt söngfólk fékk tækifæri til að stíga sín fyrstu skref á sviði. Þá var Björgvin reglulegur gestur í hinum ýmsu þáttum á Útvarpi Sögu í gegnum tíðina.

Sæmdur riddarakrossi

Í janúar 2011 var Björgvin sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar. Björgvin Halldórsson markaði djúp spor í íslenskt menningarlíf á áratugum ferils síns og naut mikillar hylli þjóðarinnar fyrir söng sinn og framkomu.

Útvarp Saga vottar aðstandendum og vinum Björgvins dýpstu samúðar og þakkar Björgvini fyrir ómetanlegt framlag til íslenskrar tónlistar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila