Björn Thor blæs til tveggja kvölda Gítarveislu

Rúnar Þór ræddi við Björn Thoroddsen, gítarleikara í þættinum Slappaðu af, um Gítarveisluna sem verður haldin 2. og 3. október í Ægi 220 í Hafnarfirði. Björn hefur staðið fyrir Gítarveislunni í meira en 20 ár og að þessu sinni koma saman reyndir tónlistarmenn, 11 ára gítarleikari og mögulega þekktur erlendur leynigestur. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Tímamót þegar þrír koma saman á svið

Fyrra kvöldið koma fram með Birni Gummi P, Óskar Logi og Brynhildur Oddsdóttir. Björn sagði það ákveðin tímamót að hann, Gummi P og Óskar Logi yrðu saman á sviði þar sem þeir þrír hefðu aldrei áður komið fram saman.

Brynhildur kemur einnig inn í hópinn og auk þess verður traust taktdeild með bassa og trommum. Björn sagði góðan samhljóm ríkja í hópnum og stefnt væri að því að gera kvöldið að sannkallaðri gítarveislu.

Ellefu ára gítarleikari fær stóra tækifærið

Einn óvenjulegasti gesturinn verður Matthías Þór, 11 ára gítarleikari úr Hafnarfirði. Björn kynntist honum á námskeiði í tengslum við Gítarveisluna og bauð honum að koma fram og taka eitt eða tvö lög.

Rúnar og Björn rifjuðu í því samhengi upp hvernig þeir sjálfir lærðu á gítar áður en internetið kom til sögunnar. Þá þurfti að hlusta aftur og aftur á plötur, leita uppi aðra gítarleikara til að fá sýnd grip og reyna að heyra sjálfur hvaða hljómar væru í lögunum.

Björn sagði þessa erfiðu leið þó hafa haft sína kosti. Hún hefði þjálfað tónheyrnina og kennt mönnum að berja sig áfram sjálfir.

Erlendur leynigestur gæti bæst við hópinn

Seinna kvöldið koma meðal annars Krummi, Andrés Þór og Börkur Hrafn Birgisson fram. Tónlistin verður fjölbreytt og nær meðal annars yfir djass, fönk og kántrí.

Björn upplýsti jafnframt að um 50% líkur væru á að þekktur erlendur gítarleikari, sem þegar er staddur á Íslandi, kæmi óvænt fram. Nafn hans má þó enn ekki gefa upp.

Hefur alltaf getað lifað af tónlistinni

Hafnarfjarðarbær kemur nú sterkar að Gítarveislunni en áður og Björn sagði það stóran sigur eftir meira en 20 ára starf. Hann hefur lengi borið bæði skipulag og fjárhagslega ábyrgð á verkefninu og benti á að ef illa færi lenti tapið beint á heimilisbókhaldinu.

Rúnar spurði einnig hvort hægt væri að lifa af því að vera tónlistarmaður. Björn sagði sig alltaf hafa náð endum saman og kennir ekki lengur heldur lifir alfarið af spilamennsku. Hann spilar mikið fyrir ferðamenn og fyrirtæki og sagði langt tengslanet og reynsla skipta miklu máli.

Fagmennskan felst þó ekki aðeins í því að kunna vel á hljóðfærið. Björn orðaði það þannig að atvinnumaðurinn þyrfti að geta staðið brosandi á sviðinu jafnvel þegar aðstæður væru slæmar og allt virtist vera að fara úrskeiðis.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila