Blekking í fjölmiðlum um að „loftslagið“ hafi leitt til fleiri elda

„Heimurinn stendur í ljósum logum.” Þannig má draga saman móðursjúklegar fréttir margra helstu fjölmiðla um skógarelda undanfarin sumur. Raunveruleikinn er hins vegar sá, að skógareldum fækkar jafnt og þétt.

Danski vísindamaðurinn Björn Lomborg, sem búsettur er á Skáni, fjallar um málið í grein í Wall Street Journal. Á þeim tíma sem eftirlit hefur farið fram, þá voru minnstir eldar í heiminum árið 2022. Samkvæmt línuritinu þá fer skógareldum fækkandi. Í upphafi aldarinnar brunnu um 3% af landi jarðar árlega. Í fyrra var hlutfallið komið niður í 2,2%.

Skógareldarnir tengjast ekki loftslagsbreytingum

Fjölmiðlarisar eins og New York Times hafa lagt mikið fé í að lýsa því, hvernig „jörðin logar“ vegna hamfarahlýnunar. Björn Lomborg bendir hins vegar á, að jafnvel loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna haldi því ekki fram, að eldarnir tengist loftslagsbreytingum.

Í sumar hafa skógareldarnir í Kanada fengið mikla athygli fjölmiðla. En í öðrum heimsálfum – sérstaklega Afríku og Evrópu – hefur í staðinn verið óvenju lítið um bruna, skrifar Lomborg með vísan til fyrirliggjandi tölfræði. Svæðið sem brunnið hefur á jörðinni það sem af er ári, er um það bil meðaltal tímabilsins 2012–2022.

Verið að hræða okkur

Björn Lomborg segir:

“Skoðanakannanir sýna aftur og aftur að flestir kjósendur eru ekki fúsir til að styðja mjög dýra loftslagsstefnu sem aðgerðarsinnar og umhverfisverndarsinnar hafa lagt fram. Ofurhitaðar fyrirsagnir um heimsendi vegna loftslagsins, eru tilraunir til að hræða okkur til að samþykkja og styðja stefnuna á kostnað skynsamlegrar skoðanaskipta og umræðu.”

Útvarp Saga greindi fyrr á þessu ári frá gagnrýni Björns Lomborg á fullyrðingar um að „loftslagið“ leiddi til aukinna dauðsfalla í heiminum. Sannleikurinn er hið gagnstæða sbr. línurit hér að neðan:

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila