
Kristján Örn Elíasson ræddi við bræðurna Jóhann Sigurðsson, leikara og söngvara og Þorstein Gauta Sigurðsson, píanóleikara í þættinum Við skákborðið um kynni sín af Bobby Fischer og tengsl hans við Ísland. Þeir sögðu að þrátt fyrir umdeild ummæli hans og erfiða stöðu gagnvart bandarískum stjórnvöldum hefðu þeir kynnst manni sem var hlýr í samskiptum, hafði mikinn áhuga á tónlist og talaði af virðingu um marga af fremstu skákmönnum heims. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Birtingarmynd Fisher í fjölmiðlum ekki alltaf sanngjörn
Jóhann sagði frá veiðiferðum sem hann fór í ásamt Fischer, Helga Ólafssyni og fleirum eftir að heimsmeistarinn settist að á Íslandi. Þar hefði Fischer komið fram eins og hver annar félagi í hópnum, sagt sögur, rætt skák og tekið þátt í félagslífinu. Þeir sögðu að margt af því sem birtist í fjölmiðlum um Fischer hafi ekki alltaf samræmst þeim manni sem þeir kynntust. Hann hafi verið forvitinn, haft gaman af samræðum og notið þess að ræða bæði skák og önnur áhugamál.
Þorsteinn Gauti rifjaði einnig upp að Fischer hefði haft mikinn áhuga á tónlist. Hann kunni texta fjölda laga utanbókar og tók gjarnan undir þegar tónlist var spiluð í samkvæmum.
Deilurnar við bandarísk stjórnvöld
Í viðtalinu var einnig rætt um þá stöðu sem kom upp eftir einvígi Fischers og Boris Spasskí í Júgóslavíu árið 1992. Bræðurnir sögðu Fischer hafa orðið skotmark bandarískra yfirvalda eftir að hann tók þátt í einvíginu þrátt fyrir viðskiptaþvinganir sem þá voru í gildi. Þeir bentu á að Fischer hefði árum saman átt erfitt með að ferðast og búið við óvissu um stöðu sína. Að þeirra mati hafi sú meðferð haft mikil áhrif á líf hans og viðhorf til stjórnvalda.
Ísland síðasta athvarfið
Bræðurnir sögðu Ísland hafa orðið Fischer mikilvægt skjól á síðustu árum ævi hans. Hér hafi hann fengið tækifæri til að lifa tiltölulega friðsömu lífi meðal vina og áhugamanna um skák. Jóhann rifjaði upp að hann hefði sungið við útför Fischers í Laugardælakirkju í janúar 2008. Þar flutti hann lögin Green, Green Grass of Home og My Way, sem Fischer hafði haft sérstakt dálæti á.
Að mati bræðranna verður Fischer ávallt minnst sem eins áhrifamesta skákmanns sögunnar, en einnig sem manns sem átti sterk tengsl við Ísland á síðasta kafla ævi sinnar.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
