Boð Hildar til Ara um stjórnarformennsku í OR er gildra

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Vigdísi Hauksdóttur, fyrrverandi borgarfulltrúa Miðflokksins og lögfræðing í síðdegisútvarpinu í dag, um boð Hildar Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins til Ara Edwald oddvita Miðflokksins um að taka við formennsku stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur þrátt fyrir að Miðflokknum yrði ekki boðin aðild að nýjum meirihluta í borginni. Vigdís sagði tilboðið bera keim af pólitískri gildru og taldi að verið væri að færa ábyrgð á erfiðum ákvörðunum yfir á Miðflokkinn án þess að flokkurinn hefði raunveruleg áhrif á stjórn borgarinnar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Samanbærilegt mál hefur áður komið upp

Vigdís rifjaði upp sambærilegt mál þegar Dagur B. Eggertsson myndaði meirihluta með Besta flokknum í Reykjavík. Þá hafi Halldóri Halldórssyni, sem sat fyrir Sjálfstæðisflokkinn í borgarstjórn og hafði áður verið bæjarstjóri á Ísafirði, verið boðin formennska í Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Að mati Vigdísar hafi það fyrirkomulag í reynd veikt stöðu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins innan borgarstjórnar, þar sem Halldór hafi fengið stöðu utan hins daglega meirihlutastarfs. Hún sagði að þeir sem hefðu bundið vonir við aukin áhrif Sjálfstæðisflokksins eftir kosningarnar hefðu orðið fyrir vonbrigðum og benti á að Eyþór Arnalds hefði síðar tekið við oddvitastöðu flokksins eftir það tímabil.

Vigdís sagði tilboð Hildar Björnsdóttur til Ara Edwald minna mjög á þá stöðu. Hún lýsti því sem „þvingunarboði“ þar sem flokki væri boðin áhrifamikil staða án þess að fá raunverulega aðkomu að stjórn meirihlutans.

Boðið tengist fyrirhuguðum ákvörðunum um Orkuveituna

Í umræðunni lagði Vigdís sérstaka áherslu á, að um hefði verið að ræða Orkuveitu Reykjavíkur en ekki önnur borgarfyrirtæki á borð við Faxaflóahafnir eða Félagsbústaði. Hún sagði það skipta máli vegna þess að fram undan væru erfiðar og umdeildar ákvarðanir innan Orkuveitunnar. Hún nefndi sérstaklega að rætt hefði verið um sölu á eignum tengdum starfsemi fyrirtækisins, þar á meðal Gagnaveitunni, og taldi að skapa ætti „armslengd“ milli meirihlutans og þeirra ákvarðana sem gætu reynst óvinsælar meðal borgarbúa. Þá sagði hún einnig liggja fyrir að hækkanir á orkuverði gætu orðið á kjörtímabilinu sem yrði mjög óvinsælt mál.

Að mati Vigdísar væri verið að reyna að gera Miðflokkinn að eins konar stuðpúða fyrir ákvarðanir sem meirihlutinn hygðist ráðast í á vettvangi Orkuveitu Reykjavíkur. Hún sagði að með því væri verið að færa pólitíska ábyrgð yfir á flokk sem hefði ekki beina aðild að stjórn borgarinnar.

Vildi 2ja flokka meirihluta

Vigdís gagnrýndi jafnframt að til hafi staðið að ræða myndun fjögurra flokka meirihluta með Sjálfstæðisflokki, Viðreisn, Framsókn og Miðflokki. Hún sagði reynsluna sýna að eftir því sem fleiri flokkar kæmu að stjórn Reykjavíkurborgar yrði stjórnun borgarinnar erfiðari og dýrari.

Hún sagði síðustu ár hafa einkennst af fjölflokka meirihlutum þar sem hver flokkur hefði þurft að fá „eitthvað fyrir sinn snúð“ og slíkt hefði bitnað á rekstri borgarinnar og stjórnkerfi hennar.

Vigdís sagðist sjálf helst hafa viljað sjá 2ja flokka meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks eftir kosningarnar. Hún taldi slíkt hafa verið í betra samræmi við vilja kjósenda í Reykjavík og þannig hefði verið hægt að ráðast í umfangsmiklar breytingar á rekstri borgarinnar og „vinda ofan af vitleysunni“ sem hún sagði hafa einkennt stjórn borgarinnar um langt skeið.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila