Boða nýjar reglur um loftslagsverkfræði í hafi

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt drög að lagabreytingum sem eiga að skapa skýrari lagaramma um rannsóknir á loftslagsverkfræðilegum aðgerðum í hafinu umhverfis Ísland.

Frumvarpið hefur verið sett í Samráðsgátt stjórnvalda og er umsagnarfrestur til 7. júlí.

Umhverfis- og orkustofnun fái leyfisveitingar

Drögin eru unnin af starfshópi fulltrúa umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, utanríkisráðuneytisins, atvinnuvegaráðuneytisins og Umhverfis- og orkustofnunar.

Markmið breytinganna er að tryggja skýrar reglur um rannsóknir á sviði loftslagsverkfræði í hafi en slíkar aðgerðir eru meðal annars rannsakaðar sem möguleg leið til að draga úr áhrifum loftslagsbreytinga af mannavöldum.

Samkvæmt frumvarpinu yrði Umhverfis- og orkustofnun falið að veita leyfi fyrir vísindarannsóknum sem tengjast slíkum aðgerðum í hafi. Stofnunin fer þegar með málaflokka sem varða loftslagsmál og mengunarvarnir.

Byggir á alþjóðlegum skuldbindingum

Í dag eru vísindalegar rannsóknir á hafsvæðum innan íslenskrar lögsögu háðar samþykki stjórnvalda samkvæmt lögum um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn. Framkvæmd þeirra laga hefur að mestu verið á forræði utanríkisráðuneytisins.

Með frumvarpinu er lagt til að sérstakur lagarammi verði settur um rannsóknir á loftslagsverkfræðilegum aðgerðum í hafi. Gert er ráð fyrir að aðeins lögmætar vísindarannsóknir geti fengið leyfi og að þær verði háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt alþjóðlega viðurkenndum matsviðmiðum.

Tillögurnar byggja meðal annars á breytingum á Lundúnabókuninni um varnir gegn mengun hafsins og er þeim ætlað að tryggja að Ísland uppfylli alþjóðlegar skuldbindingar sínar um verndun hafsins gegn mögulegri mengun sem slíkar aðgerðir kunna að valda.

Smelltu hér til þess að skoða málið í samráðsgátt

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila