Boðar breytingar á umferðarlögum til að stemma stigu við hraðakstri

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hyggst leggja fram veigamiklar breytingar á umferðarlögum á næstu dögum til að stemma stigu við hraðakstri og alvarlegum umferðarlagabrotum. Með breytingunum verður meðal annars stefnt að því að styrkja heimildir lögreglu til að bregðast við hættulegri aksturshegðun. Jafnframt verður ráðist í sérstakt fræðsluátak um hraðakstur í samstarfi við ungmenni, foreldra og skólasamfélagið. Þetta kom fram í ávarpi ráðherrans á minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa, sem haldinn var víða um land í dag, sunnudaginn 15. nóvember. Að þessu sinni var sjónum sérstaklega beint að ungum ökumönnum og afleiðingum hraðaksturs.

Áhættuhegðun ungra ökumanna hefur aukist í ákveðnum hópum

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu eru skýr merki um að áhættuhegðun í umferðinni hafi aukist á ný meðal afmarkaðra hópa ungra ökumanna.

Á síðustu mánuðum og misserum hafa orðið alvarleg umferðarslys sem rekja má til hraðaksturs eða annarrar áhættuhegðunar.

Þróunin er þó ekki sú sama hjá öllum ungum ökumönnum. Gögn Samgöngustofu sýna að þeim slysum sem ungir ökumenn valda hefur fækkað verulega á síðustu 20 árum. Þá hefur ungmennum sem slasast í bifreiðum einnig fækkað mikið.

Ungir ökumenn eru engu að síður hlutfallslega líklegri til að lenda í slysum og óhöppum en eldri ökumenn.

Vill efla heimildir lögreglu

Eyjólfur sagði í ávarpi sínu að stjórnvöld gætu ekki setið hjá þegar ungmenni létu lífið vegna hraðaksturs.

„Við höfum þurft að horfast í augu við að mörg ungmenni hafa látið lífið í umferðarslysum vegna hraðaksturs. Við getum ekki setið hjá við slíkar aðstæður – og verðum að grípa til aðgerða.“

Ráðherrann boðaði að frumvarp að breytingum á umferðarlögum yrði kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á næstu dögum.

Breytingunum er ætlað að efla umferðaröryggi og styrkja úrræði lögreglu gegn alvarlegum umferðarlagabrotum.

Jafnframt verður farið í fræðslu- og kynningarátak þar sem áhersla verður lögð á afleiðingar hraðaksturs og mikilvægi ábyrgrar hegðunar í umferðinni.

Rúmlega fjórðungur Íslendinga hefur misst nákominn í umferðarslysi

Ný könnun Samgöngustofu sýnir að rúmlega 26% Íslendinga hafa misst náinn ættingja eða vin í umferðarslysi.

Á minningardeginum voru haldnar athafnir víða um land til að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni og vekja athygli á afleiðingum alvarlegra slysa.

Í Reykjavík fór minningarathöfn fram við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi.

Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra fluttu ávörp. Haraldur Már Haraldsson sagði jafnframt frá reynslu sinni, en hann varð ungur að árum valdur að banaslysi æskuvinar síns vegna hraðaksturs.

Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, stýrði athöfninni.

Minningarathafnir víða um land

Minningarstundir voru skipulagðar á 17 stöðum um land allt í samstarfi við Slysavarnafélagið Landsbjörg og aðra viðbragðsaðila. Unglingadeildir björgunarsveitanna gegndu mikilvægu hlutverki við undirbúning athafnanna.

Við athöfnina í Reykjavík flutti MH-kórinn lagið I Think of Angels, sem KK samdi til minningar um systur sína sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992.

Lagið var einnig flutt í útgáfu KK og Ellenar, systur hans, samtímis á útvarpsstöðvum landsins kl. 14.

Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er alþjóðlegur dagur á vegum Sameinuðu þjóðanna og er haldinn þriðja sunnudag í nóvember ár hvert.

Þetta er í sextánda sinn sem minningardagurinn er haldinn á Íslandi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila