
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra í síðdegisútvarpinu um fyrirhugaðar breytingar á grunnskólakerfinu, námsmati og nýjum áherslum í lestrarkennslu. Þar kom fram að ráðherrann hyggst hraða breytingum á aðalnámskrá, taka upp tölustafi við einkunnagjöf í grunnskólum og innleiða í auknum mæli kennsluaðferðir sem byggja á verkefninu Kveikjum neistann. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Of lengi horft framhjá versnandi stöðu
Í viðtalinu sagði Inga að staða margra barna í íslenskum grunnskólum væri alvarlegt áhyggjuefni. Hún vísaði til þess að stór hluti nemenda lyki 10 ára grunnskólagöngu með slakan lesskilning og takmarkaða möguleika til áframhaldandi náms. Inga segir að of lengi verið horft fram hjá versnandi árangri nemenda og niðurstöður alþjóðlegra mælinga sýndu að Ísland væri að dragast aftur úr í menntamálum. Hún sagði nauðsynlegt að ráðast í breytingar sem styrktu grunnfærni barna, sérstaklega lestur og lesskilning.
Inga sagði einnig að kennarar glímdu við sífellt meira álag vegna stórra bekkja og fjölmargra tungumála, fjölgunar greininga og aukins skorts á sérfræðingum innan skólakerfisins, meðal annars talmeinafræðingum, sálfræðingum og öðru stuðningsfólki.
Skólar hafa kallað eftir að taka upp Kveikjum neistann
Ráðherrann lagði mikla áherslu á verkefnið Kveikjum neistann sem hefur meðal annars verið þróað í Vestmannaeyjum. Hún sagði verkefnið byggjast á rannsóknum og reynslu sem sýndi góðan árangur í lestrarkennslu og aukinni vellíðan barna. Hún nefndi einnig Lindarskóla í Kópavogi þar sem sambærilegar aðferðir hefðu skilað góðum árangri. Markmiðið væri að efla áhuga barna á námi, bæta samvinnu skóla og foreldra og skapa jákvæðara skólaumhverfi.
Inga sagði mikilvægt að skólakerfið leggi meiri áherslu á að börn upplifðu öryggi og árangur í námi í stað þess að bæta sífellt við verkefnum og kröfum sem mörg börn réðu illa við.
Bókstafakerfi tekið upp í stað núverandi námsmats
Í viðtalinu kom einnig fram að ráðherrann hyggst breyta námsmati í efstu bekkjum grunnskóla. Hún sagði núverandi kerfi ekki gefa foreldrum og nemendum nægilega skýra mynd af stöðu barna í námi. Stefnt væri að því að taka upp tölustafakerfi í stað núverandi hæfnimats og breytingin gæti tekið gildi með reglugerð strax næsta haust. Inga sagði að undirbúningur væri þegar hafinn innan ráðuneytisins og kallað hefði verið til sérfræðinga úr menntakerfinu til að vinna að breytingunum.
Hún sagði jafnframt að aukin áhersla yrði lögð á raungreinar, lestur og grunnfærni á næstu árum og markmiðið væri að snúa við þeirri þróun sem hefði einkennt íslenskt skólakerfi undanfarin ár.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
