
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Kristinn Sigurjónsson, rafmagns- og efnaverkfræðing og fyrrverandi lektor í síðdegisútvarpinu, um einkunnakerfi í skólum, lestrarfærni og hvata til náms. Hann lýsti því að upptaka bókstafaeinkunna hefði dregið verulega úr skýrleika í mati á námsárangri og veikt grunnforsendur þess að fylgjast með framförum nemenda. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Breitt bil innan sömu einkunnar
Í umræðunni kom fram að bókstafaeinkunnir nái yfir mjög breitt árangursbil, án þess að greina á milli raunverulegrar hæfni nemenda. Kristinn útskýrði að einkunn á borð við B geti náð yfir mikinn mun í kunnáttu, þar sem nemandi með miðlungsárangur og annar með nær fullkomna færni fái sömu niðurstöðu. Með þessu hverfi sú nákvæma stöðumæling sem áður var til staðar með tölueinkunnum.
Framfarir verða ósýnilegar
Hann lagði áherslu á að nemendur sjái ekki lengur skýra þróun í eigin námsárangri. Smávægilegar framfarir, sem áður birtust í hækkandi tölueinkunnum, komi ekki fram í bókstafakerfi. Þetta dragi úr hvata til að leggja aukna vinnu í námið þar sem árangur skili sér ekki með sýnilegum hætti.
Lestrarfærni veikur grunnur
Kristinn benti jafnframt á að lestrarfærni væri undirstaða alls náms og staðan þar væri alvarleg. Nemendur ljúki grunnskóla án þess að ná fullnægjandi tökum á lestri sem hamli bæði frekara námi og þátttöku í samfélaginu. Hann lýsti lestrarskorti sem víðtæku vandamáli sem hafi áhrif á öll fög.
Tölur og stærðfræðiskilningur víkja
Arnþrúður benti á að samhliða því að notast sé við bókstafi við einkunnagjöf, hafi dregið hefði úr notkun tölulegrar framsetningar í samfélaginu. Kristinn sagði að þegar tölur séu skrifaðar með bókstöfum í stað tákna, torveldi það skilning þeirra sem treysta á sjónræna framsetningu talna. Þetta hafi meðal annars áhrif á stærðfræðiskilning og getu nemenda til að vinna með tölulegar upplýsingar.
Grunnfærni mótar framtíðarmöguleika nemenda
Að mati Kristins hefur samspil óskýrs einkunnakerfis og veikrar grunnfærni víðtæk áhrif. Skert lestrar- og talnaskilningur takmarki möguleika einstaklinga til að tileinka sér frekari þekkingu og dragi úr getu þeirra til að takast á við kröfur nútímasamfélags.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
