
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Arnar Þór Jónsson, lögmann og fyrrverandi héraðsdómara, í síðdegisútvarpinu um frumvarp vegna bókunar 35 sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur lagt fram á ný. Arnar segir samþykkt frumvarpsins geta gjörbreytt stöðu Alþingis með því að veita reglum sem innleiða EES-skuldbindingar forgang gagnvart öðrum íslenskum lögum. Hann varar við að þingið verði að afgreiðslustofnun og stimpilpúða fyrir erlent vald. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Reglur geti gengið framar íslenskum lögum
Kjarni málsins snýst um hvað gerist þegar íslensk lög rekast á reglur sem innleiða skuldbindingar samkvæmt EES-samningnum. Arnar segir frumvarpið fela í sér að slíkar reglur geti gengið framar öðrum almennum íslenskum lögum.
Það sé grundvallarbreyting frá því fyrirkomulagi sem samið var um, þegar Ísland gekk inn í EES. Þá hafi verið ljóst að stjórnarskráin setti mörk við því hversu langt væri hægt að ganga og því hafi verið farin sú leið að íslenskir dómstólar túlkuðu lög með hliðsjón af EES-skuldbindingum.
Nú sé hins vegar verið að færa þessum skuldbindingum ríkari stöðu gagnvart lögum sem Alþingi setur sjálft.
Hvað verður þá um Alþingi?
Arnþrúður spurði hvað yrði um hlutverk Alþingis ef reglur sem ættu uppruna sinn hjá Evrópusambandinu fengju slíka stöðu. Ef þingmenn hefðu í raun ekki vald til að segja já eða nei við efni reglnanna og þær gengju engu að síður framar íslenskum lögum væri spurning hvort löggjafarhlutverk þingsins væri smám saman að tæmast.
Arnar sagði afleiðinguna geta orðið þá að Alþingi yrði lítið annað en afgreiðslustofnun og stimpilpúði fyrir erlent vald.
Hann vísaði til þess að íslenskt sjálfstæði hefði byggst á því að löggjafarvaldið væri hér á landi og að Alþingi gæti sett lög út frá íslenskum aðstæðum og hagsmunum. Ef raunveruleg stefnumörkun og lagasmíð færðist í síauknum mæli út fyrir landið væri þátttaka almennings í íslenskum stjórnmálum um leið gerð áhrifaminni.
Þorgerður boðaði frumvarpið aftur þrátt fyrir Nei-sigurinn í þjóðaratkvæðagreiðslunni
Arnar tengdi tímasetningu frumvarpsins beint við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald ESB-viðræðna. Hann sagði ríkisstjórnina hafa varið mikilli pólitískri orku í ESB-málið en eftir að þjóðin hafnaði framhaldi viðræðna hefði bókun 35 strax verið sett aftur á dagskrá.
Að hans sögn boðaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir endurflutning frumvarpsins strax daginn eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna.
Arnar túlkar það þannig að þegar ekki hafi tekist að færa Ísland nær Evrópusambandinu með áframhaldandi aðildarviðræðum sé nú reynt að ganga lengra í gegnum EES-samninginn.
Þúsundir reglna þegar teknar inn
EES-samningurinn var upphaflega kynntur sem viðskipta- og markaðssamningur en hefur á rúmum 30 árum teygt sig inn á æ fleiri svið íslensks réttar.
Arnar sagði Alþingi hafa innleitt þúsundir skuldbindinga á þessu tímabili. Þess vegna skipti bókun 35 svo miklu máli. Hún næði ekki aðeins til einnar nýrrar reglu heldur gæti haft áhrif á stöðu þess mikla regluverks sem þegar hefur verið tekið inn.
Að hans sögn er því ekki hægt að afgreiða málið með því að segja að lítið breytist vegna þess að Ísland hafi hvort sem er tekið upp mikið af EES-reglum.
Bókun 35 snýst þannig að hans mati um grundvallarspurningu: hvort endanlegt löggjafarvald á Íslandi eigi áfram að liggja hjá Alþingi eða hvort reglur sem eiga uppruna sinn utan landsins fái stöðu sem gengur framar lögum þingsins.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
