Bókun 35 gengur í berhögg við stjórnarskrána og er valdaframsal

Bókun 35 gengur algerlega í berhögg við stjórnarskrá Íslands og er valdaframsal því í ef hún verður samþykkt er búið að samþykkja að EES reglur sem innleiddar hafa verið hér á landi gangi framar íslenskum lögum stangist þau á við reglurnar. Þetta segir Inga Sæland formaður Flokks fólksins en hún var gestur í þætti Arnþrúðar Karlsdóttur í dag.

Inga segir að í bókuninni sjálfri komi það eitt jákvæða fram að settur er sá fyrirvari að innleiða þurfi bókunina ef þörf krefji. Hún segir þetta vera eitt af lykilatriðunum því það snúist um hver eigi að meta hver þörfin sé á að samþykkja bókun 35. Bendir Inga á að eins og stjórnarfarið sé hér á landi sé það ríkisstjórnin sem sé einráð og því sé það hún sem meti þetta án þess að nokkur annar geti haft eitthvað um það að segja. Ríkisstjórnin taki hins vegar engin mál stjórnarandstöðunnar upp nema þau séu ríkisstjórninni þóknanleg. Því sé þessi svokallaði varnagni sem ríkisstjórnin vilji kalla svo einskis virði.

Flokkur fólksins mun ekki samþykkja bókun 35

Inga segir að afstaða Flokks fólksins í málinu sé afar skýr. Flokkurinn muni neita að samþykkja bókun 35 og láta reyna á málið fyrir EFTA dómstólnum um hvort hægt sé að þvinga Ísland til þess að samþykkja bókunina og hvers virði stjórnarskráin er þegar komi að EFTA dómstólnum. Íslandi sé ætlað að túlka lög til samræmis við EES reglur, um það hafi verið samið í upphafi. Þá er spurningin hvað ætlar EFTA dómstólinn að gera ef hann ætlar að neyða Ísland til þess að undirgangast bókun 35 án þess að taka tillit til stjórnarskrá Íslands.

Fullveldi okkar í hættu

Það sé því svo að Inga og Flokkur fólksins ætla að berjast gegn bókun 35 og hún viti að það ætli Miðflokkurinn líka að gera. Hún veltir því fyrir sér hvort Ísland sé ekki þegar búið að beygja sig nóg fyrir ESB. Inga spyr hversu langt eigi að ganga í því að draga Ísland frá því að vera fullvalda sjálfstætt ríki, í þjónkun við bókun sem Ísland hafi ekki nokkurn skapaðan hlut við að gera.

Hlusta má á ítarlegri umræður um bókun 35 í spilaranum hér að neðan

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila