Bókun 35 teppaleggur íslenskan rétt með Evrópulöggjöf

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Bergþór Ólason, þingmann Miðflokksins, í síðdegisútvarpinu í dag,um bókun 35 og áhrif hennar á íslenskan rétt. Bergþór telur frumvarpið eins og það liggur fyrir leggja Evrópureglur yfir gildandi íslenska löggjöf og skapa verulega réttaróvissu. Hann vill að Ísland verji núverandi stöðu fyrir EFTA-dómstólnum áður en Alþingi samþykkir breytingarnar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Vill að Ísland taki til varna fyrir EFTA-dómstólnum

Bergþór gagnrýndi að bókun 35 væri sett í forgang skömmu eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna og á sama tíma og Ísland þurfi að bregðast við máli ESA. Hann telur eðlilegra að stjórnvöld setji saman öflugt lögfræðiteymi og verji þá lagalegu útfærslu sem Ísland hefur byggt á frá gildistöku EES-samningsins.

Hann vísaði til þriggja bréfa sem íslensk stjórnvöld sendu ESA árið 2020 og sagði þar hafa verið sett fram ítarleg lagaleg rök fyrir stöðu Íslands. Þegar hann spurði utanríkisráðherra hvaða rök úr þeim bréfum væru nú úrelt hefði hann ekki fengið skýr svör.

Bergþór telur jafnframt að stjórnvöld eigi að fara að málinu með svipuðum hætti og gert var í Icesave-deilunni, þegar utanaðkomandi sérfræðingar komu að vörn Íslands og stjórn og stjórnarandstaða unnu saman að undirbúningnum.

Segir Hæstaréttardóma ekki styðja meginrök ráðherrans

Mikilvægi bókunar 35 hefur meðal annars verið rökstutt með vísan til 2ja dóma Hæstaréttar. Bergþór sagði þann málflutning ekki standast þegar dómarnir væru lesnir.

Hann telur ekkert í þeim segja að bókun 35 hafi verið ranglega innleidd í íslenskan rétt. Í öðru málinu hefði niðurstaðan jafnvel verið óhagstæðari fyrir viðkomandi einstakling ef bókunin hefði verið innleidd með þeim hætti sem nú er lagt til.

Þar með telur hann eina helstu röksemdina fyrir breytingunni, að hún styrki réttindi einstaklinga og dragi úr réttaróvissu, hafa veikst verulega.

Alþingi gæti þurft sífellt að bregðast við árekstrum

Þegar Arnþrúður spurði hvaða áhrif breytingin gæti haft á Alþingi sagði Bergþór að með henni yrði Evrópulöggjöf lögð yfir gildandi íslenskan rétt með mjög víðtækum hætti.

Alþingi gæti í einstökum tilvikum sett sérstakt ákvæði um að íslensk regla skyldi gilda þrátt fyrir Evrópureglu en Bergþór telur óraunhæft að fara þannig yfir allan gildandi rétt.

Afleiðingin gæti orðið að einstaklingar og fyrirtæki þyrftu í auknum mæli að leita til dómstóla til að fá úr því skorið hvaða regla hefði forgang.

Stjórnarskráin verði tekin fyrir ef Ísland tapar málinu

Bergþór vill því fyrst láta reyna á málstað Íslands fyrir EFTA-dómstólnum. Ef niðurstaðan yrði sú að núverandi framkvæmd stæðist ekki skuldbindingar Íslands telur hann að næsta skref eigi að vera opin umræða um stjórnarskrána og hvort þjóðin sé tilbúin til þess fullveldisframsals sem breytingin krefjist.

Hann hafnaði því að núverandi útfærsla frá upphafi EES-samningsins hefði orðið til fyrir mistök. Íslensk stjórnvöld hefðu á sínum tíma valið þessa leið meðvitað vegna þeirra marka sem stjórnarskráin setti.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila