Borgarfulltrúar Miðflokksins gagnrýna samþykkt nýs skóla í Vogabyggð

Borgarfulltrúar Miðflokksins gagnrýna harðlega ákvörðun meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur um að hefja innkaupaferli vegna hönnunar nýs skóla í Vogabyggð, Fleyvangs – Skólabrúar. Málið var samþykkt á aukafundi borgarstjórnar í gær með 12 atkvæðum meirihlutans gegn sex atkvæðum Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins.

Í bókun Miðflokksins segir að óeðlilegt hafi verið að samþykkja svo umfangsmikið og kostnaðarsamt verkefni í miklum flýti á sérstökum aukafundi aðeins fáeinum dögum fyrir kosningar.

Vara við „kostnaðarlegu stórslysi“

Í bókuninni segir að fyrirliggjandi gögn bendi til þess að byggingin verði einkennandi fyrir framúrstefnulegan íburð og bruðl. Borgarfulltrúarnir telja að lega og lögun hússins geti gert framkvæmdina bæði flókna og kostnaðarsama og að hætta sé á verulegum framúrkeyrslum.

Samkvæmt þeim gögnum sem lögð voru fram nemur kostnaðaráætlun verkefnisins tæplega 14,9 milljörðum króna. Efri vikmörk áætlunarinnar eru sögð nema 19,3 milljörðum króna en neðri mörk 13,4 milljörðum.

Miðflokkurinn segir reynslu undanfarinna ára sýna að ástæða sé til að miða fremur við efri mörk slíkra áætlana, sérstaklega í ljósi þess að framkvæmdirnar verði líklega fjármagnaðar með lántökum sem muni falla á komandi kynslóðir.

Segja borgina ekki hafa lært af fyrri mistökum

Í bókuninni er einnig vísað til fyrri framkvæmda Reykjavíkurborgar á sviði skólamála sem hafi farið langt fram úr kostnaðaráætlunum. Þar segir að ekkert bendi til þess að stjórnendur borgarinnar hafi dregið lærdóm af þeim mistökum.

Borgarfulltrúarnir telja að hægt sé að reisa metnaðarfullar og glæsilegar skólabyggingar án þess að kostnaður fari úr böndum og gagnrýna jafnframt að verðlaunasamkeppnir í opinberum framkvæmdum leiði oft til þess að hagkvæmni og notagildi víki fyrir framúrstefnulegri hönnun.

Þeir segja að arkitektar líti slík verkefni gjarnan sem tækifæri til að reisa sér „minnismerki“, þar sem byggingar- og rekstrarkostnaður skipti litlu máli til lengri tíma.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila