Borgarlínan er tifandi tímasprengja

Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Guðlaug Þór Þórðarson og Sigurð Örn Hilmarsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, í þættinum Skipulagsmál, um samgöngusáttmálann, Borgarlínuna og uppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu. Sigurður Örn kallaði stöðuna tifandi tímasprengju og sagðist hafa miklar áhyggjur af því hvort forsendur Borgarlínunnar og fjármögnun hennar standist. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Samgönguáformin á sjálfstýringu

Sigurður Örn sagðist hafa beðið í 1 1/2 ár eftir sérstakri umræðu við innviðaráðherra um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu.

Hann taldi sjálfsagt að ríkið og sveitarfélögin gerðu sameiginlegar áætlanir um samgöngur en forsendurnar yrðu að vera raunhæfar. Ef þróunin sýndi að upphaflegar áætlanir gengju ekki upp þyrfti að endurskoða þær. Það hefði hins vegar ekki verið gert og hann sagði verkefnið hafa verið á sjálfstýringu. Hann fagnaði því að Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefði sett bremsu á hluta áformanna.

Sigurður vakti jafnframt athygli á að ríkissjóður ætti að fjármagna stóran hluta samgönguframkvæmdanna, annaðhvort með beinum framlögum eða gjaldtöku án þess að nægileg pólitísk umræða hefði farið fram um það.

Stærstu samgöngumannvirki Íslandssögunnar

Sigurður ræddi einnig sérstakt innviðafélag sem ætlað er að standa að samgöngumannvirkjum, meðal annars með tekjum af veggjöldum. Ef einstök mannvirki geta ekki staðið undir sér með þeirri gjaldtöku þurfi ríkið að leggja fram fjármagn á móti.

Hann sagði um að ræða langstærstu samgöngumannvirki Íslandssögunnar en þingmenn hefðu aldrei fengið tækifæri til að ræða þau almennilega. Þegar samgönguáætlun kæmi til umræðu í 1 eða 2 daga birtust þessi stóru verkefni frekar eins og einstök atriði í greinargerð þrátt fyrir umfang þeirra.

Áhyggjur af fjármögnun Borgarlínunnar

Hjördís benti á að almenningur gerði ráð fyrir því að þingmenn hefðu farið vandlega yfir jafn umfangsmiklar framkvæmdir.

Sigurður tók undir það en sagði raunveruleikann annan. Þegar horft væri til framtíðar sæjust stundum hættumerki og í þessu tilfelli væri um tifandi tímasprengju að ræða.

Hann vill að Borgarlínan verði útfærð þannig að hún nái þeim markmiðum sem henni eru sett. Áhyggjurnar snúast hins vegar um hvort forsendurnar standist og hvort raunhæft sé að fjármagna bæði framkvæmdirnar og reksturinn eins og gert er ráð fyrir.

Hjördís benti á að rekstur Strætó hefði þegar reynst fjárhagslega erfiður og spurði hvernig ætti að bæta mörg hundruð milljónum við rekstur nýs kerfis.

Fólk mun áfram þurfa bíla

Sigurður sagði mikilvægt að hlusta á starfsfólk Strætó og þá sem þekktu kerfið best. Ef ferðir inn í borgina yrðu of tímafrekar og leiðakerfið flóknara myndi það ekki skila tilætluðum árangri.

Hann gagnrýndi einnig hugmyndir um íbúðabyggð án bílastæða. Sú forsenda að fólk myndi sjálfkrafa nota Borgarlínuna ef bílastæðum væri sleppt stæðist ekki. Fólk gæti einfaldlega ákveðið að kaupa ekki slíkt húsnæði.

Þjóðin væri jafnframt að eldast og margir gætu ekki gengið langar vegalengdir frá heimili sínu. Bílar yrðu því áfram hluti af samgöngum fólks og eðlilegt væri að fólk vildi geta lagt nálægt eigin húsnæði.

Guðlaugur bætti við að einmanaleiki yrði ein stærsta samfélagslega áskorunin og skipulag byggðar þyrfti einnig að taka mið af því hvernig fólk gæti haldið félagslegum tengslum.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila