Borgin leitar að samstarfsaðila til þess að reka parísarhjól

Reykjavíkurborg leitar þessa dagana eftir samstarfsaðila til að reka parísarhjól á Miðbakka í Reykjavíkurhöfn. Fram kemur í tilkynningu að verkefnið sé hugsað sem spennandi viðbót við fjölbreytt borgarlíf.

Verkefnið á rætur sínar í hugmyndavinnu innan borgarinnar um haftengda upplifun, en sá starfshópur setti fram fjölmargar hugmyndir um hvernig bæta mætti lífsgæði borgarbúa og lýðheilsu í skýrslu sem kom út síðasta haust.  

Gert er ráð fyrir að parísarhjólið verði opið yfir sumartímann. Þá er gert ráð fyrir að mögulegur rekstraraðili muni standa allan straum af kostnaði við uppsetningu og rekstur parísarhjóls, en framlag borgarinnar til samstarfsins verði afnot af lóð Faxaflóahafna í fyrirfram ákveðinn tíma.

Svæðið sem borgin gæti lagt til undir verkefnið er 725 fermetrar og þar ætti að vera hægt að koma fyrir 20 metra löngum vagni með parísarhjóli. Hæðartakmörk eru 30 metrar.  Þá er í auglýsingu gerðar kröfur um parísarhjólið og annar búnaður þoli íslenskar aðstæður þ.m.t. vindálag og jarðhræringar.  

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila