
Hér má sjá mynd frá atriði Klébergsskóla
Breiðholtsskóli og Klébergsskóli tryggðu sér sæti í úrslitum Skrekks 2026 á fyrsta undanúrslitakvöldi keppninnar sem fram fór í Borgarleikhúsinu mánudagskvöldið 9. nóvember. Alls tóku 227 ungmenni þátt í atriðum kvöldsins.
Meðal skólanna sem tóku þátt voru Breiðholtsskóli, Klébergsskóli, Klettaskóli, Laugalækjarskóli, Réttarholtsskóli, Rimaskóli, Seljaskóli, Tjarnarskóli og Víkurskóli.
Íslenskar draugasögur og vögguvísa innblástur Breiðholtsskóla

Breiðholtsskóli komst áfram með atriðið Dulan, sem fjallar um örvæntingarfulla móður sem ber út barn sitt. Atriðið sækir innblástur í íslenska vögguvísu og draugasögur.
Klébergsskóli tryggði sér einnig sæti í úrslitum með atriðinu Sveitin er geitin. Þar er sagt frá sveitadreng sem sýnir Reykjavíkurdreng að lífið í sveitinni sé ekki eins ólíkt lífinu í miðborginni og hann hafði talið.
Báðir skólarnir halda áfram í úrslitakeppni Skrekks þar sem þeir munu etja kappi við aðra skóla sem tryggja sér sæti á næstu undanúrslitakvöldum.
