Breyta þarf stjórnarskránni til að svipta menn ríkisborgararétti

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Helga Magnús Gunnarsson, fyrrverandi vararíkissaksóknara og lögmann, í Fréttum vikunnar um skipulagða brotastarfsemi og viðbrögð íslenskra stjórnvalda við henni. Helgi sagði erlenda glæpastarfsemi hér á landi orðna þess eðlis að breyta þyrfti stjórnarskránni svo hægt yrði að svipta menn íslenskum ríkisborgararétti ef þeir væru dæmdir fyrir skipulagða brotastarfsemi og senda þá úr landi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Skipulögð brotastarfsemi kallar á harðari viðbrögð

Helgi sagði brotastarfsemi hafa breyst mikið frá því sem áður þekktist hér á landi. Skipulagið væri orðið meira, tengsl við erlend glæpasamtök sterkari og starfsemin grimmari.

Þegar brot væru framin útreiknað, í ágóðaskyni og innan skipulagðra hópa væri um annars konar ógn að ræða en þegar einstaklingar fremdu brot vegna eigin neyslu eða við aðrar afmarkaðar aðstæður. Við slíkri þróun þyrfti að bregðast af hörku í samræmi við tilefnið.

Stjórnarskráin hindri sviptingu ríkisborgararéttar

Helgi sagði núverandi stjórnarskrá koma í veg fyrir að einstaklingur væri sviptur íslenskum ríkisborgararétti. Hann vísaði sérstaklega til 1.málsgreinar 66. greinar stjórnarskrárinnar. Hann nefndi einnig samning Evrópuráðsins frá 1997 um ríkisfang og sagði fleiri Evrópuríki hafa farið mismunandi leiðir gagnvart þeim samningi.

Þessu þyrfti að breyta svo íslensk stjórnvöld hefðu raunhæfari úrræði þegar einstaklingar með íslenskan ríkisborgararétt væru dæmdir fyrir skipulagða brotastarfsemi.

Sviptir ríkisborgararétti og sendir úr landi

Helgi sagði menn sem hefðu fengið íslenskan ríkisborgararétt og síðar væru dæmdir fyrir skipulagða brotastarfsemi eiga að geta misst ríkisborgararéttinn. Viðkomandi ætti síðan að senda úr landi í stað þess að íslenska ríkið sæi um afplánun hans hér og sleppti honum aftur út í samfélagið að henni lokinni.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila