
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Loga Kjartansson, lögfræðing í síðdegisútvarpinu í dag, um ráðherraábyrgð og stjórnskipulegar afleiðingar þess að ráðherra fari með mál utan síns lögbundna verksviðs. Í viðtalinu kom fram að brot gegn stjórnarskrá, forsetaúrskurðum og verkaskiptingu ráðherra geti varðað ráðherraábyrgð og fallið undir ráðherraábyrgðarlög. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Utanríkisráðherra kominn út fyrir verksvið sitt með valdþurrð
Í umræðunni kom fram að það væri meðal frumskyldna ráðherra að fara efitr ákvæðum stjórnarskrár og halda sig innan þeirra valdheimilda sem lög og forsetaúrskurðir mæla fyrir um. Logi sagði að ráðherra gæti ekki farið inn á verksvið annars ráðherra og slíkt teldist valdþurrð samkvæmt stjórnsýslurétti. Hann tengdi það við meðferð ESB-málsins þar sem utanríkisráðherra fari með mál sem samkvæmt gildandi forsetaúrskurðum heyri undir forsætisráðherra.
Um væri að ræða brot gegn grundvallarreglum um stjórnskipan ríkisins og lögmætar meðferðar framkvæmdarvalds.
Ráðherraábyrgðarlög og Landsdómur
Í viðtalinu var fjallað um ákvæði stjórnarskrárinnar um ráðherraábyrgð og möguleikann á að draga ráðherra til ábyrgðar vegna embættisathafna sinna. Logi vísaði til þess að sérstök ráðherraábyrgðarlög væru í gildi og Landsdómur færi með dómsvald í slíkum málum. Alþingi færi hins vegar með ákæruvaldið og því réði pólitískur meirihluti miklu um hvort mál gegn ráðherra kæmust áfram.
Þá kom fram að þingræðisreglan hefði í framkvæmd í för með sér að ráðherra nyti verndar svo lengi sem meirihluti Alþingis stæði að baki ríkisstjórninni eða sætti sig við framgöngu hennar.
Forsætisráðherra Kristrún Frostadóttir er sérstaklega nefnd í forsetaúrskurði
Í umræðunni kom einnig fram að ábyrgðin hvíldi ekki aðeins á þeim ráðherra sem færi með málið heldur einnig á ríkisstjórninni í heild og sérstaklega forsætisráðherra. Logi sagði að forsætisráðherra bæri samkvæmt stjórnarskrá og forsetaúrskurðum sérstakt samræmingar- og eftirlitshlutverk gagnvart öðrum ráðherrum. Hann benti á að í gildandi forsetaúrskurðum væri Kristrún Frostadóttir sérstaklega nefnd sem forsætisráðherra og færi með þau stjórnarmálefni sem heyra undir forsætisráðuneytið.
Þá kom fram að einnig mætti líta til ábyrgðar annarra ráðherra ríkisstjórnarinnar ef þeir létu hjá líða að gera athugasemdir við meðferð málsins þrátt fyrir að um væri að ræða stórt stjórnskipulegt álitaefni.
Logi benti á að hér væri um grundvallarspurningu að ræða um hvort stjórnvöld ætluðu að fylgja stjórnarskrá og gildandi lögum við meðferð mála sem vörðuðu fullveldi og stjórnskipan Íslands.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
