
Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Andra Rey Haraldsson, formann Félags íslenskra rafvirkja og varaformann Rafiðnaðarsambandsins, og Björn Ágúst Björnsson, stjórnarmann Matsmannafélags Íslands, í þættinum Skipulagsmál um eftirlit á byggingarstöðum og flóknar undirverktakakeðjur. Andri sagði brotum almennt fjölga eftir því sem lengra væri farið niður keðju undirverktaka og vill að keðjuábyrgð verði einnig tekin upp á almennum markaði. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Aðalverktakinn hefur ekki alltaf yfirsýn
Hjördís spurði hversu algeng mál væru þar sem ófaglærðir starfsmenn ynnu störf á byggingarstöðum og hvort dæmið úr Garðabæ, þar sem aðeins einn af 30 var með staðfest sveinspróf, væri einstakt.
Andri sagði dæmið mjög afgerandi en slík vandamál væru engu að síður algeng. Verkefnin væru oft byggð upp þannig að aðalverktaki réði undirverktaka, sá réði annan undirverktaka og síðan bættust fleiri lög við keðjuna.
Í sumum tilfellum vissi aðalverktakinn ekki einu sinni hjá hvaða fyrirtæki allir starfsmenn á framkvæmdinni væru í vinnu. Hann teldi sig hafa keypt vinnu af einum undirverktaka en sá væri síðan sjálfur búinn að semja við aðra.
Andri sagði slíkt fyrirkomulag gera yfirsýn erfiða og að meiri brot sæjust almennt eftir því sem neðar drægi í undirverktakakeðjunni. Vandinn væri þekktur víða í Evrópu og unnið væri gegn honum innan evrópskra samtaka iðngreinanna.
Aðalverktaki beri ábyrgð alla leið niður
Ein leiðin sem fagfélögin vilja fara er aukin keðjuábyrgð. Þá bæri aðalverktaki ábyrgð á því að laun væru greidd öllum starfsmönnum í undirverktakakeðjunni, einnig hjá undirverktökum undirverktakanna.
Hjördís bað Andra að útskýra hvernig slíkt fyrirkomulag virkaði. Hann sagði hægt að sækja kröfu á aðalverktaka ef laun skiluðu sér ekki til starfsmanna neðar í keðjunni.
Slík ábyrgð væri þegar komin inn í ríkisverkefni en hefði ekki verið innleidd með sama hætti á almennum markaði.
Dregið hefur úr brotalömum hjá starfsmannaleigum
Starfsmannaleigur hafa einnig verið færðar undir keðjuábyrgð og Andri sagði það hafa lagað hluta vandans.
Þegar fyrirtæki gætu sjálf borið ábyrgð á því sem gerðist neðar í keðjunni væru þau síður tilbúin að eiga við starfsmannaleigu sem þau treystu ekki til að fara eftir reglum. Það stuðlaði að því að vandaðri aðilar héldust frekar inni á markaðnum.
Hann sagði sambærilega ábyrgð á almennum byggingarmarkaði geta haft sömu áhrif. Aðalverktaki sem bæri ábyrgð á launum starfsfólks undirverktaka væri ólíklegri til að velja vafasaman aðila inn í verkefnið.
Ekki hægt að fullyrða að slík brot valdi byggingargöllum
Hjördís spurði Björn hvort skortur á keðjuábyrgð gæti verið hluti skýringarinnar á byggingargöllum.
Björn sagði ekki hægt að fullyrða það fyrir hönd Matsmannafélagsins. Félagið héldi ekki tölfræði um hvaða undirliggjandi þættir leiddu mál til mats eða málaferla og því væri ekki grundvöllur fyrir slíkri niðurstöðu.
Matsmálin væru af ýmsum toga og snerust ekki alltaf um eiginlega byggingargalla. Ágreiningur gæti einnig snúist um upplýsingar í söluyfirliti, greiðslur fyrir vinnu eða önnur atriði milli aðila.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
