
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Brynjar Níelsson, nýkjörinn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í síðdegisútvarpinu um áform um starfsemi Samhjálpar við Grensásveg og viðbrögð íbúa við þeim áformum. Þar sagði Brynjar mikilvægt að hjálpa fólki sem glímdi við fíknivanda og félagslegan vanda en taldi jafnframt að taka yrði tillit til íbúðaumhverfis og öryggis í nærumhverfi slíkrar starfsemi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Segir íbúa hafa áhyggjur af staðsetningunni
Í viðtalinu kom fram að íbúar í hverfinu hefðu lýst yfir áhyggjum af því að starfsemi Samhjálpar yrði staðsett inni í þéttu íbúðahverfi við Grensásveg. Arnþrúður vísaði til þess að leikskólar, grunnskólar og íþróttastarf barna væru í næsta nágrenni og íbúar óttuðust aukið ónæði og óöryggi. Mikilvægt væri að mati Brynjars að stjórnvöld og borgaryfirvöld hlustuðu á slíkar áhyggjur í stað þess að keyra ákvarðanir áfram án samráðs. Hann sagði að borgarbúar hefðu í auknum mæli upplifað að sjónarmið þeirra væru hunsuð í skipulagsmálum og að það hefði skapað mikla gremju.
Í umræðunni nefndi Brynjar að ekki væri hægt að setja alla starfsemi inn í íbúðahverfi og vísaði meðal annars til nektardansstaða og annarrar starfsemi sem gæti valdið ónæði eða óöryggi fyrir íbúa.
Segir fólk í vanda þurfa aðstoð – hætta getur stafað af sumum
Lagði Brynjar áherslu á að fólk sem glímdi við fíknivanda eða félagslegan vanda ætti rétt á aðstoð og stuðningi. Hann sagði slíkan vanda oft tengjast veikindum og flóknum félagslegum aðstæðum fremur en einföldum persónulegum vandamálum. Þá kom fram hjá Brynjari að margir þeirra sem nýttu sér slíka þjónustu væru honum vel kunnir frá fyrri störfum hans og hann hefði um árabil komið að málum fólks sem glímdi við alvarlegan vanda. Hann sagði þó að sumt fólk gæti verið mjög veikt og í ákveðnum tilfellum jafnvel hættulegt umhverfi sínu sem gera þyrfti ráð fyrir þegar staðsetning þjónustuúrræða væri ákveðin. Það væri í alla staði varasamt að flytja slíka starfsemi í íbúðahverfi.
Að mati Brynjars þyrfti að meta sérstaklega hvort starfsemi gæti haft áhrif á öryggi, ónæði eða lífsgæði íbúa í næsta nágrenni.
Gagnrýnir skort á samráði í borginni
Benti Brynjar á að sambærileg átök hefðu komið upp víðar í Reykjavík þar sem íbúar og fyrirtæki upplifðu að ákvarðanir væru teknar án nægilegs samráðs. Fólk upplifði í auknum mæli að borgaryfirvöld færu fram með valdboðslegum hætti í skipulagsmálum og þjónustuverkefnum. Að hans mati sýndu niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna að margir borgarbúar vildu breytingar á þessum stjórnarháttum og meiri áherslu á samtal og samvinnu við íbúa áður en stórar ákvarðanir væru teknar.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
