Brynjar gagnrýnir þöggun um útlendingamál og pólitíska stimplun

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Brynjar Níelsson, nýkjörinn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi alþingismann, í síðdegisútvarpinu um útlendingamál, skipulagða glæpastarfsemi og pólitíska umræðu á Íslandi. Þar gagnrýndi Brynjar hvernig stjórnmálamenn og fjölmiðlar fjölluðu um innflytjendamál og öryggismál og sagði að þeir sem vildu ræða þessi mál opinberlega væru oft stimplaðir sem rasistar eða öfgamenn. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Ísland hefur misst tök á þróuninni

Í viðtalinu sagði Brynjar að skipulögð glæpastarfsemi og erlendir glæpahópar hefðu fest sig í sessi hér á landi á undanförnum árum. Hann sagði að slíkur vandi væri þekktur í stórborgum erlendis en íslensk stjórnvöld hefðu brugðist of seint við þróuninni. Að mati Brynjars hefði eftirlit með komu fólks til landsins verið ófullnægjandi og stjórnmálamenn oft forðast umræðu um vandann af ótta við ásakanir um fordóma eða hatursorðræðu. Hann sagði að umræðan hefði þróast þannig að fólk sem vildi hertari stefnu í útlendingamálum væri fljótt stimplað með neikvæðum hætti.

Gagnrýnir fjölmiðlaumfjöllun og stimplun

Arnþrúður benti á að í kosningabaráttunni hefðu frambjóðandi Miðflokksins í Reykjavík verið spurður í RÚV um myndband sem tekið var upp í Kópavogi og vísað í ungliða flokksins og hvort þeir væru andvígir hinsegin fólki. Hún sagði umræðuna hafa verið notaða til að stimpla flokkinn með neikvæðum hætti og sætti furðu að RÚV sýndi af sér slíka framkomu daginn fyrir kjördag.

Hægri sjórnmálamenn stimplaðir fyrir skoðanir sínar

Brynjar tók undir að slíkar aðferðir hefðu lengi verið notaðar gegn Miðflokknum og öðrum sem vildu ræða útlendingamál eða öryggismál með gagnrýnum hætti. Hann sagði að hægrisinnaðir stjórnmálamenn væru reglulega tengdir við rasisma eða öfgar í pólitískri umræðu og slíkt væri gert til að veikja málstað þeirra. Brynjar sagði að sambærileg nálgun hefði lengi verið viðhöfð í RÚV gagnvart stjórnmálamönnum sem vildu ræða breytingar á útlendingastefnu eða aukið eftirlit með skipulagðri glæpastarfsemi.

Lýðræðið byggist á skoðanafrelsi

Í umræðunni var fjallað um vókismann og vaxandi tilhneigingu til útilokunar í samfélagsumræðunni. Brynjar sagði hættulegt þegar pólitísk afstaða væri gerð að mannréttindamáli með þeim hætti að andstæð sjónarmið væru skilgreind sem óásættanleg. Að hans mati byggðist lýðræðið á því að fólk gæti haft ólíkar skoðanir án þess að vera útilokað úr umræðunni eða stimplað með neikvæðum hætti. Hann sagði að stjórnmálaumræða undanfarinna ára hefði einkennst um of af hræðsluáróðri gagnvart fólki með aðrar skoðanir á innflytjenda- og samfélagsmálum.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila