Búið að byggja of mikið af dýru húsnæði sem hentar ekki fólki

Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Guðlaug Þór Þórðarson og Sigurð Örn Hilmarsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, í þættinum Skipulagsmál, um húsnæðisuppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu. Sigurður Örn sagði búið að byggja of mikið af dýru húsnæði sem henti ekki þörfum fólks þótt skortur væri enn á húsnæði sem fólk raunverulega vildi kaupa. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Framboðið passar ekki við eftirspurnina

Sigurður sagði töluvert framboð vera af íbúðum en vandinn væri að margar þeirra hentuðu fólki ekki. Hjördís vísaði til upplýsinga sem hefðu komið fram um 85% aukningu á óseldum íbúðum. Þrátt fyrir það væri enn húsnæðisskortur og Sigurður sagði skýringuna meðal annars liggja í því hvers konar íbúðir hefðu verið byggðar.

Mikið framboð væri á húsnæði á þéttingarreitum sem væri einfaldlega of dýrt og ekki í takt við þarfir kaupenda.

Nýtt húsnæði mun dýrara

Hann áætlaði að húsnæði sem byggt hefði verið eftir 2020 væri um 30% dýrara en eldra húsnæði. Of mikil áhersla hefði verið lögð á dýrar fjölbýlishúsaeignir á sama tíma og eftirspurn væri meiri eftir sérbýli og öðrum húsnæðiskostum sem hentuðu fjölskyldum betur.

Sigurður sagði byggingarverktaka sem hann hefði rætt við einnig finna fyrir þessu. Fólk væri ekki á móti fjölbýli sem slíku heldur vildi það fremur minni og manneskjulegri einingar.

Minni fjölbýlishús eftirsóttari

Hjördís nefndi hús með fimm til sjö íbúðum og Sigurður sagði fimm til átta íbúða hús geta verið hugguleg, vistleg og manneskjuleg.

Slík uppbygging væri að hans mati frábrugðin stórum kjörnum með 40 íbúðum eða meira þar sem byggðin gæti orðið þéttari og minna í takt við það sem margir kaupendur vildu.

Hjördís nefndi jafnframt dæmi um framkvæmdaaðila sem hefðu selt íbúðir sínar hratt þar sem hefðbundin bílastæði væru við húsin.

Vaxtarmörkin þrengja að uppbyggingu

Sigurður færði umræðuna einnig að vaxtarmörkum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.

Hann sagði hvert sveitarfélag í raun hafa neitunarvald gagnvart því að færa mörkin út þar sem samþykki allra þyrfti til breytinga.

Guðlaugur og Sigurður hafa beitt sér á Alþingi fyrir skýrari ramma um þessi mörk. Sigurður sagði borgina eiga nóg af landi og að landsskortur væri ekki vandamálið heldur þyrfti að nýta það betur og byggja húsnæði sem samræmdist raunverulegri eftirspurn.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila