Búið að ná mörgum minkum í Mosfellsdal

Aðgerðir vegna þeirra mörg hundruð minka sem sluppu úr minkabúinu Dalsbúi í Mosfellsdal snemma í morgun ganga vel að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt nýjustu upplýsingum er heildarmynd atviksins að skýrast og hafa hvorki sést minkar né borist tilkynningar um þá lengra en um 500 metra frá búinu.

Drónar og hitamyndavélar notaðar

Lögreglan segir að drónar með hitamyndavélum hafi verið notaðir við leitina í allan morgun. Búið sé að handsama marga minka og aðgerðir hafi gengið vel. Næsta skref sé að fanga þá minka sem enn eru innan öryggisgirðingar búsins og koma þeim aftur inn í hús.

Minkaveiðimenn halda leit áfram svo lengi sem þörf krefur

Þegar því verkefni lýkur taka minkaveiðimenn við leitinni ásamt hundum í næsta nágrenni við búið. Lögreglan segir að þeirri leit verði haldið áfram eins lengi og þörf krefur þar til tryggt verður að búið sé að ná þeim minkum sem sluppu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila