Byggingar geta skapað hættulegar vindrastir yfir Reykjavíkurflugvelli

Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Albínu Thordarson, arkitekt og Sigurð Hólmar Jóhannesson, framkvæmdastjóra og fyrrverandi flugumferðarstjóra í síðdegisútvarpinu um áhrif þéttingu byggðar á Reykjavíkurflugvöll. Sigurður varaði við því að fyrirhugaðar byggingar í Nýja Skerjafirði gætu myndað vindrastir yfir mest notuðu flugbraut vallarins í vestanátt og skapað stórhættu fyrir flugvélar. Hann sagði byggingar í nágrenni flugvallarins þegar hafa haft áhrif á starfsemina. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Byggð hefur þegar haft áhrif á flugvöllinn

Albína gagnrýndi hversu nálægt stofnbrautum og mikilvægum samgöngumannvirkjum væri byggt. Sigurður tengdi það við reynslu Reykjavíkurflugvallar og sagði uppbyggingu í nágrenni hans þegar hafa haft afleiðingar fyrir starfsemina.

Ein flugbraut hefði verið lögð niður en Sigurður benti á að hún hefði meðal annars gegnt mikilvægu hlutverki fyrir sjúkraflug við ákveðnar vindaðstæður. Hann taldi þróunina sýna hversu varasamt væri að þrengja sífellt meira að flugvellinum með byggð.

Hjördís spurði hvort raunhæft væri að færa innanlandsflugið annað. Sigurður benti á að annar flugvöllur hefði aldrei verið byggður til að taka við hlutverki Reykjavíkurflugvallar og því væri ekki hægt að ganga út frá því að einfaldlega mætti flytja starfsemina.

Vindrastir yfir mest notuðu flugbrautinni

Mestar áhyggjur Sigurðar sneru að fyrirhuguðum byggingum í Nýja Skerjafirði. Hann sagði vestanátt geta lent á húsunum þannig að vindrastir mynduðust handan þeirra og næðu yfir flugbrautina.

Þar væri um að ræða mest notuðu flugbraut Reykjavíkurflugvallar. Sigurður sagði sérstaklega hættulegt ef flugvél væri að koma inn til lendingar og lenti skyndilega í slíkum vindröstum skammt frá jörðu. Hann lýsti þeirri stöðu sem stórhættulegri.

Albína taldi þetta undirstrika að skipulag þéttrar byggðar yrði að taka mið af áhrifum langt út fyrir sjálfan byggingarreitinn. Hæð og staðsetning húsa gæti breytt vindafari og þegar flugöryggi væri annars vegar yrði að rannsaka þau áhrif áður en byggt væri.

Sigurður taldi því ekki nægja að meta fyrirhugaða byggð í Nýja Skerjafirði eingöngu út frá húsnæðis- og skipulagssjónarmiðum. Áhrif hennar á vindafar við Reykjavíkurflugvöll gætu haft beina þýðingu fyrir öryggi flugvéla í flugtaki og lendingu.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila