
Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Magnús Skúlason, arkitekt og fyrrverandi framkvæmdastjóra Húsafriðunarnefndar og Pétur H. Ármannsson, arkitekt, rithöfund og sviðsstjóra húsverndarmála hjá Minjastofnun í þætti sínum um skipulagsmál, um áhrif þéttingarstefnunnar á hönnun íbúðarhúsnæðis. Magnús sagði byggingarreglugerðinni hafa verið breytt árið 2012 til að greiða fyrir þéttari og stærri byggingum. Með breytingunni hefði meðal annars verið opnað fyrir einhliða íbúðir sem sneru í norðlægar áttir þótt eldri reglur hefðu gert meiri kröfur um sólarljós og birtu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Húsin urðu mun stærri
Magnús sagði þéttingarstefnuna hafa leitt til þess að hús væru gerð mun stærri en áður. Hann nefndi sem dæmi að breidd bygginga hefði farið úr um 6 metrum upp í allt að 20 metra.
Þegar byggingar yrðu svo stórar breyttust möguleikarnir á að skipuleggja íbúðir innan þeirra. Til að koma fyrir miklu byggingamagni þyrfti að raða íbúðum þannig að þær sneru í fleiri áttir en áður.
Byggingarreglugerðin hefði áður sett ákveðnar skorður við þessu en Magnús sagði þeim hafa verið rýmkað árið 2012.
Máttu áður ekki snúa eingöngu í norður
Samkvæmt Magnúsi gerði eldri reglugerðin ráð fyrir að íbúðir sneru til suðurs og hefðu glugga á fleiri en eina hlið. Undantekning hefði verið fyrir minni einhliða íbúðir en þær hefðu þurft að snúa til suðurs og ekki mátt vera stærri en 50 fermetrar.
Þessu hefði verið breytt árið 2012 og eftir breytinguna varð meðal annars heimilt að hafa einhliða íbúðir sem sneru í norðlægar áttir.
Magnús tengdi breytinguna við þéttingarstefnuna og sagði hana hafa auðveldað uppbyggingu stærri húsa þar sem meira byggingamagni væri komið fyrir á hverri lóð.
Dagsbirtan varð undir
Magnús taldi eldri reglur hafa tekið meira mið af þörfum fólks fyrir sól og dagsbirtu. Hann sagði eldri byggingarreglugerð hafa verið einfaldari og betri að þessu leyti.
Nokkur breyting hefði nú orðið til batnaðar með nýjum ákvæðum um dagsbirtu. Áhrif eldri reglna myndu engu að síður sjást áfram þar sem enn yrði byggt samkvæmt samþykktum áformum sem byggðust á þeim.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
