
Í Síðdegisútvarpinu ræddi Arnþrúður Karlsdóttir við Kristinn Sigurjónsson rafmagns og efnaverkfræðing um Carbfix verkefnið. Verkefnið sem sagt er snúast um að binda koldíoxíð í bergi með því að dæla því niður í jörðina hefur verið kynnt sem stórt skref í loftslagsmálum. Verkefnið hefur vakið athygli bæði innanlands og utan en ekki eru allir sannfærðir um að aðferðin sé raunhæf eða hagkvæm. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Mikill kostnaður við að binda koldíoxíð
Kristinn lagði áherslu á að binda koldíoxíð úr andrúmslofti sé afar kostnaðarsamt. Hann benti á að styrkur koldíoxíðs í andrúmsloftinu sé aðeins brot af prósenti sem geri ferlið bæði orkufrekt og dýrt. Endurvinnsla koldíoxíðs úr jarðhitasvæðum eða iðnaðaruppsprettum sé heldur ekki einföld og kosti mikla fjármuni.
Hann sagði að jafnvel þótt aðferðin virki tæknilega þá sé efnahagslega hagkvæmni verkefnisins mjög vafasöm. Að hans mati væri líklegra að verulegar fjárhæðir yrðu sóaðar í verkefnið án þess að raunverulegur árangur næðist.
Engin ástæða til þess að binda koldíoxíð á Íslandi
Kristinn vakti athygli á því að engin sérstök ástæða væri fyrir að binda koldíoxíð á Íslandi frekar en annars staðar í heiminum. Hann benti á að betra væri að framkvæma slíkar aðgerðir nær iðnaðarsvæðum þar sem koldíoxíðið er losað í miklu magni fremur en að flytja verkefnið hingað þar sem náttúrulegar uppsprettur eru af skornum skammti.
Hann sagði að ein helsta ástæðan fyrir að staðsetja Carbfix á Íslandi væri sú að hér væru tiltækir fjármunir til að niðurgreiða verkefnið.
Loftslagskirkjan heilaþvær fólk með fölskum upplýsingum
Í umræðunni um loftslagsaðgerðir lýsti Kristinn miklum efasemdum um ríkjandi umræðu og kallaði hana heilaþvott. Hann benti á að loftslagskirkjan eins og hann orðaði það hefði sannfært almenning um að hækkun koldíoxíðs í andrúmsloftinu myndi leiða til heimsendis. Hann sagði þetta rangt og nefndi að aðal gróðurhúsalofttegundin í andrúmsloftinu væri vatnsgufa ekki koldíoxíð.
Hann sagði að loftslag hefði sveiflast um aldir án aðkomu mannsins og að koldíoxíð hefði áður verið í miklu hærra hlutfalli í andrúmsloftinu en nú án þess að það hefði haft hörmulegar afleiðingar fyrir jörðina.
Þörf á meiri rökhugsun í umræðunni
Kristinn sagði að mikil vöntun væri á tæknimenntuðu fólki í stjórnsýslu og fjölmiðlum. Hann taldi að vöntun á lógískri hugsun og raunsæi hefði gert það að verkum að verkefni eins og Carbfix og aðrar dýrar loftslagsaðgerðir fengju lítinn rökstuðning og væru keyrð áfram á tilfinningum fremur en staðreyndum.
Hann hvatti til þess að tekið yrði mark á raunvísindalegum rökum þegar ákvarðanir um fjárfestingar í loftslagsverkefnum væru teknar.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan
