
Kristján Örn Elíasson ræddi við Björgvin Víglundsson, skákmeistara og byggingaverkfræðing, í þættinum Við skákborðið, um væntanlegt heimsmeistaraeinvígi Gukesh og Javokhir Sindarovs. Björgvin rakti mat Magnusar Carlsen á keppendunum en samkvæmt því hefur Sindarov meiri alhliða skilning á stöðum í skákinni. Carlsen taldi hann líklegri til sigurs nema Gukesh tækist að slá hann út af laginu snemma í einvíginu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Reynslan gæti hjálpað Gukesh
Björgvin sagði Carlsen hafa bent á ákveðna veikleika í stöðuskilningi Gukesh en jafnframt talið hann reynslumeiri í þeirri sérstöku baráttu sem fylgir einvígi um heimsmeistaratitil. Ef Gukesh næði að byrja vel og kæmi Sindarov úr jafnvægi gæti það breytt gangi einvígisins. Björgvin tók sjálfur fram að Sindarov tefldi mjög vel en að Gukesh væri ekkert síðri. Heimsmeistarar gætu einnig farið í gegnum tímabil þar sem minna gengi og pressan á toppnum væri mikil.
Sindarov teflir grimmt og tekur áhættu
Björgvin lýsti Sindarov sem mjög grimmum skákmanni og líkti honum að einhverju leyti við Alexander Alekhine sem var þekktur fyrir mikla baráttu og sóknarskák. Sindarov væri tilbúinn að fara fram og taka áhættu. Björgvin nefndi Garry Kasparov einnig í því samhengi og sagði hann hafa haft sérstaka tilfinningu fyrir hreyfingu stöðunnar og vitað hvenær hægt væri að taka áhættu án þess að fara yfir mörkin. Hann bar þetta saman við Tigran Petrosian sem hefði lagt mun meiri áherslu á öryggi.
14 kappskákir ráða úrslitum
Einvígið verður teflt yfir 14 kappskákir og sá verður heimsmeistari sem fyrstur nær 7,5 vinningum. Kristján og Björgvin ræddu hvort slíkt fyrirkomulag væri nægilega langt til að skera úr um hvor væri sterkari í klassískri skák. Björgvin benti á að heimsmeistaraeinvígi hefðu áður verið mun lengri og á árum áður meðal annars verið tefldar 24 skákir þótt munurinn á keppendum gæti engu að síður verið mjög lítill.
Verði staðan 7–7 eftir 14 skákir þarf að grípa til styttri skáka til að fá úrslit. Kristján taldi fremur dapurt ef heimsmeistaratitill í kappskák réðist að lokum í hraðari skákum en Björgvin sagði atskák þó gefa einhverja vísbendingu um hvor væri sterkari. Eftir því sem lengra væri farið út í bráðabana yrði niðurstaðan hins vegar óvissari.
Milljónir fyrir hvern sigur
Verðlaunapotturinn í einvíginu er 2,5 milljónir Bandaríkjadala sem Kristján sagði jafngilda rúmlega 345 milljónum íslenskra króna. Auk þess fær keppandi 200 þúsund dali fyrir hvern sigur í einstakri skák sem Kristján reiknaði sem um 25 til 30 milljónir króna. Hann tengdi það við vilja mótshaldara til að fá hörkukeppni og færri jafntefli.
Björgvin taldi þó að peningarnir yrðu ekki það sem fyrst væri í huga keppendanna. Heimsmeistaratitillinn væri númer eitt, tvö og þrjú.
Yngsta kynslóðin tekur við
Gukesh varð heimsmeistari árið 2024 eftir sigur á Ding Liren og Björgvin sagði hann hafa teflt mjög vel í áskorendamótinu áður. Sindarov vann sér síðan rétt til heimsmeistaraeinvígisins með sigri á áskorendamótinu 2026. Báðir eru aðeins tvítugir og Kristján sagði þetta sýna skýrt hvernig yngsta kynslóðin væri að taka við á hæsta stigi skákarinnar.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
