Daði Már fjármálaráðherra vill fækka ferðamönnum á Suðurlandi

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Atla Lilliendahl og Öldu Björk Lilliendahl, ferðaþjónusturekendur í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu í dag, um fyrirhugaðar breytingar á gjaldtöku af ferðamönnum. Atli greindi frá því að Daði Már Kristófersson, ráðherra hefði á fundi á Selfossi fyrir stuttu, lýst því yfir að hann vildi fækka ferðamönnum á Suðurlandi. Atli var ekki sjálfur á fundinum en hafði upplýsingarnar frá sveitarstjórnarfólki sem sótti hann. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Ummæli ráðherrans vekja hörð viðbrögð

Atli sagði ummælin hafa fallið á fundi í kartöflugeymslunni á Selfossi. Hann hefði síðar rætt við sveitarstjórnarfólk og oddvita úr uppsveitunum sem voru viðstödd og fengið þá frásögn að ráðherrann ætlaði að draga úr fjölda ferðamanna á Suðurlandi.

Hann gagnrýndi að stjórnvöld teldu sig geta ákveðið hvert ferðamenn ættu að fara og spurði hvernig slík stefna samræmdist þeirri miklu uppbyggingu sem hefði átt sér stað á svæðinu.

Arnþrúður spurði hvaða skýringar ráðherrann hefði gefið og minnti á að stjórnvöld hefðu árum saman lagt mikla áherslu á að laða erlenda ferðamenn til Íslands með umfangsmikilli markaðssetningu t.d.í gegnum Íslandsstofu.

Ferðamenn velji sjálfir hvaða staði þeir heimsækja

Alda sagði hugmyndina vera að dreifa ferðamönnum betur um landið. Atli taldi hins vegar að stjórnvöld gætu ekki gert ráð fyrir að ferðamenn breyttu áætlunum sínum eftir því hvar þeim væri ætlað að ferðast.

Alda nefndi Þingvelli, Gullfoss og Geysi sem einstaka áfangastaði sem fólk kæmi sérstaklega til Íslands til að skoða. Margir ferðamenn dveldust aðeins stuttan tíma í landinu og veldu Gullna hringinn vegna nálægðar við Keflavíkurflugvöll.

Arnþrúður spurði hvort markmiðið væri að beina ferðamönnum frekar til Norður- og Austurlands eða hvort náttúruvernd og uppbygging innviða réðu stefnunni?

Óttast að ferðamenn leiti á óundirbúin svæði

Atli benti á að mikil uppbygging hefði þegar farið fram við Gullfoss og Geysi og þar væri aðstaða til að taka á móti þúsundum gesta daglega.

Hann óttaðist að gjaldtakan gæti orðið til þess að ferðamenn leituðu að gjaldfrjálsum leiðum að náttúruperlum, meðal annars hinum megin við Gullfoss. Þar kynnu að skapast vandamál vegna skorts á aðstöðu.

Alda rifjaði upp að áður hefðu vinsælir ferðamannastaðir skort nauðsynlega innviði, þar á meðal salerni, en á undanförnum árum hefði verið unnið að því að bæta aðstöðuna.

Vilja fá ráðherrann í beina umræðu

Atli gagnrýndi að ráðherrann hefði að hans sögn kynnt breytingarnar sem niðurstöðu samráðs við ferðaþjónustuna. Hann taldi þá lýsingu ekki samræmast reynslu rekstraraðila á svæðinu.

Alda hvatti Daða Má til að koma í uppsveitirnar, hitta fólkið og hlusta á sjónarmið þess. Hún sagðist jafnframt vilja fá hann í samtal við fulltrúa ferðaþjónustunnar þar sem hann gæti skýrt afstöðu sína.

Atli taldi mikilvægt að fá skýr svör um hvort fækkun ferðamanna á Suðurlandi væri raunverulegt markmið stjórnvalda og hvaða forsendur lægju að baki því.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila