
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Dag B. Eggertsson, þingmann Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóra í síðdegisútvarpinu í dag, um mikinn áhuga ESB að fá Ísland og Noreg inn í ESB, skuldastöðu ríkja innan Evrópusambandsins og hvort Ísland gæti þurft að bera kostnað vegna skulda annarra ríkja með aðild og upptöku evru. Dagur hafnaði því afdráttarlaust og sagði hvert ríki þurfa að glíma við eigin ríkisskuldir. Hann fullyrti að ekkert ríki innan ESB tæki yfir skuldir annars ríkis. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
ESB vilji bæði Ísland og Noreg inn
Dagur sagði Evrópusambandið hafa áhuga á að fá Ísland inn í sambandið og það vildi einnig fá Noreg til að ganga í ESB. Hann taldi þetta skipta máli þegar samningsstaða Íslands væri metin og sagði stöðuna nú hagstæða fyrir Ísland.
Hann tengdi þetta jafnframt við stöðu EES-samningsins og sagði að ef Norðmenn gengju í ESB gæti það haft grundvallaráhrif á framtíð EES. Þess vegna væri mikilvægt fyrir Ísland að horfa ekki aðeins á stöðuna eins og hún væri í dag heldur einnig hvaða breytingar gætu orðið á næstu árum. Arnþrúður sagði að Noregur myndi aldrei vilja ganga í Evrópusambandið ef samningsstaða Íslands væri svona góð núna mætti spyrja sig afhverju Noregur færi ekki núna inn í ESB fyrst samningsstaðan væri svona góð.
Ekkert ríki tæki yfir skuldir annars ríkis
Arnþrúður vakti athygli á að skuldir ríkja innan Evrópu væru gríðarlegar og nefndi meðal annars stöðu Þýskalands, Frakklands, Ítalíu, Grikklands og Belgíu. Hún dró í efa að upptaka evru væri áhættulítil fyrir Ísland þegar sum stærstu ríki Evrópu glímdu við miklar skuldir og þrýsting á ríkisfjármálin.
Dagur sagði skuldavanda einstakra ríkja ekki verða að skuldavanda Íslands þótt landið gengi í Evrópusambandið og tæki síðar upp evru. Ríkin þyrftu sjálf að glíma við eigin ríkisskuldir og Ísland tæki þær ekki á sig.
Ekkert ríki taki yfir skuldir annars ríkis
Dagur setti afstöðu sína fram með afdráttarlausum hætti og sagði:
„Ekkert ríki innan Evrópusambandsins tekur við skuldum frá öðru ríki.“
Dagur hélt þannig fast við að skuldir einstakra ríkja yrðu áfram á þeirra ábyrgð.
ESB og Dýrin í Hálsaskógi
Dagur kom þá með samlíkingu við Dýrin í Hálsaskógi og regluna um að ekkert dýr mætti éta annað dýr. Með því undirstrikaði hann þá afstöðu sína að aðild að Evrópusambandinu eða evrusamstarfinu þýddi ekki að eitt ríki tæki einfaldlega yfir skuldir annars.
Arnþrúður sagðist efast um að hægt væri að treysta slíkri tryggingu til frambúðar meðal annars vegna fjárhagsstöðu ýmissa ESB ríkja og þeirri áhættu sem Ísland gæti tekið á sig með inngöngu í sambandið. Dagur hélt því fram að vandamál ríkja með eigin ríkisskuldir breyttu ekki grundvallarreglunni. Þau yrðu sjálf að takast á við skuldir sínar og þær yrðu ekki færðar yfir á Ísland eða önnur aðildarríki. Arnþrúður sagði að sú stefna væri að birtast hjá ESB núna að ríkin deildu skuldaábyrgð t.d. með sameiginlegum lánum í nafni ESB.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
