
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Ólafsson, hagfræðing og stærðfræðing, í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu, um Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra og Mörð Árnason, fyrrverandi alþingismann, sem báðir eru nýlega látnir. Guðmundur rifjaði upp tengsl fjölskyldu sinnar við fjölskyldu Davíðs, vináttu sína við Mörð og kynni af fleiri þekktum stjórnmálamönnum. Arnþrúður sagði jafnframt frá góðum samskiptum sínum við Davíð á Alþingi þegar hún fór á þing. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Fjölskyldutengsl við Davíð ná aftur til bernskuáranna
Guðmundur sagði fjölskyldur þeirra Davíðs hafa tengst allt frá því að hann var barn. Þegar hann var um tveggja ára gamall hefði hann veikst af sjúkdómi sem erfitt reyndist að greina. Þá hefði Oddur Ólafsson, faðir Davíðs og nýkominn heim frá sérnámi í barnalækningum í Svíþjóð, verið fenginn til að skoða hann og áttað sig á því hvað að honum gekk.
Guðmundur ólst upp í Mávahlíð en Davíð bjó í Barmahlíð. Þeir voru fæddir með þriggja mánaða millibili en tilheyrðu sitt hvorum árganginum í skóla. Hann sagðist ekki hafa kynnst Davíð náið persónulega en fylgst með honum alla ævi.
Hann mundi sérstaklega eftir Davíð sem 11–12 ára dreng á sendlahjóli fyrir Sunnubúðina á horni Mávahlíðar og Lönguhlíðar. Guðmundur nefndi einnig Þrúði Ólafsdóttur, föðursystur Davíðs, sem hefði verið heimilisvinur fjölskyldunnar og meðal annars reynt að kenna honum ensku.
Mörður Árnason fræddi um málvísindi
Guðmundur minntist einnig Marðar Árnasonar, fyrrverandi þingmanns Samfylkingarinnar, sem hann sagði hafa verið góðan vin sinn. Hann rifjaði sérstaklega upp samtöl þeirra um málvísindi og sagði Mörð hafa búið yfir mikilli þekkingu á því sviði.
Mörður hefði meðal annars frætt hann um franska málvísindamanninn Ferdinand de Saussure og fleiri fræðimenn. Guðmundur sagðist hafa lært mikið af þessum samtölum og minntist vinar síns með hlýhug.
Arnþrúður rifjaði jafnframt upp þingstörf Marðar eftir bankahrunið. Hún sagðist þá hafa gert athugasemdir við fjármögnun Ríkisútvarpsins og Mörður hefði unnið að því að afla skýrslna frá Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, sem hafi verið dyggilega faldar í fjármálaráðuneytinu.
Hún minntist þess sérstaklega að Mörður hefði lagt sig fram um að fá gögnin afhent og lýsti aðdáun sinni á framgöngu hans í málinu.
Sýndi nýjum þingmönnum sérstaka umhyggju
Arnþrúður rifjaði upp kynni sín af Davíð þegar hún tók sæti á Alþingi sem varamaður árið 1995. Hún sagði hann hafa sýnt nýjum þingmönnum mikla kurteisi og áhuga á því hvernig þeim gengi að fóta sig í þingstörfunum.
Hún lýsti því hvernig Davíð hefði komið að máli við nýja þingmenn, spurt hvernig þeim liði og hvort þeir ættu auðvelt með að átta sig á störfum Alþingis. Hann hefði einnig viljað vita hvort eitthvað mætti betur fara.
Arnþrúður sagðist síðar hafa hitt hann nokkrum sinnum og átt við hann góð samtöl. Hún taldi þessa framkomu lýsa mannlegri hlið hans sem ekki hefði alltaf fengið nægilega athygli í opinberri umræðu og oft á tíðum hefði hann ekki fengið njóta sannmælis.
Davíð einn merkasti stjórnmálamaður þjóðarinnar
Guðmundur lýsti Davíð sem einum áhrifamesta stjórnmálamanni Íslandssögunnar. Hann sagði Davíð hafa búið yfir mikilli þekkingu, stjórnmálalegri færni og sérstökum húmor sem hefði átt þátt í velgengni hans.
Hann rifjaði jafnframt upp persónuleg kynni sín af eldri stjórnmálamönnum, meðal annars Jónasi frá Hriflu og Einari Olgeirssyni. Guðmundur sagði Einar á sínum tíma hafa haft milligöngu um að hann færi til náms í Sovétríkjunum. Til umræðu hefði komið að hann lærði olíuverkfræði í Rúmeníu vegna hugmynda um olíuhreinsunarstöð á Íslandi en niðurstaðan hefði orðið sú að hann fór til Leníngrad að læra stærðfræði.
Guðmundur að þó þessir stjórnmálamenn hafi haft ólík sjónarmið hafi þeir báðir lagt mikið af mörkum til íslensks samfélags.
Einkaframtak og verkalýðsbarátta mótuðu hagkerfið
Guðmundur sagði Davíð hafa verið öflugan málsvara einkaframtaks, einkavæðingar og tekjuöflunar. Hann setti stjórnmálaarfleifð hans í samhengi við áhrif samvinnuhreyfingarinnar og verkalýðshreyfingarinnar á Íslandi.
Hann nefndi Einar Olgeirsson, Lúðvík Jósepsson og Guðmund J. Guðmundsson sem dæmi um forystumenn sem hefðu lagt áherslu á félagsleg réttindi og bætt kjör launafólks. Davíð hefði hins vegar lagt sitt af mörkum með áherslu á einstaklingsframtak og verðmætasköpun.
Guðmundur taldi samspil þessara ólíku stjórnmálahefða hafa verið Íslendingum farsælt. Hann sagði það hafa stuðlað að blönduðu hagkerfi þar sem bæði öflugt atvinnulíf og verkalýðshreyfing hefðu haft áhrif á hvernig ávinningur af virkjunum, tækniframförum og efnahagslegri uppbyggingu skilaði sér til almennings.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
