DEI hluti af stærri hugmyndafræðilegri þróun

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Valgerði Snæland Jónsdóttur, fyrrverandi skólastjóra og kennara til margra ára, í síðdegisútvarpinu, um DEI, inngildingu, fjölbreytni, jöfnuð og þær hugmyndir sem hafa komið inn í íslenskt skólastarf. Valgerður sagði DEI vera hluta af stærri hugmyndafræðilegri þróun sem birtist einnig í woke-hugmyndafræðinni, gagnrýninni kenningu og nýjum áherslum innan skóla og stofnana. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

DEI ekki einangrað fyrirbæri

Arnþrúður spurði hvað DEI stæði fyrir. Valgerður útskýrði að skammstöfunin merkti „diversity, equity and inclusion“, eða fjölbreytni, jafnrétti og inngildingu.

Hugtökin standi ekki ein og sér heldur séu hluti af mun stærri hugmyndafræðilegri þróun. Sömu grunnforsendur birtist undir mismunandi heitum, meðal annars í woke, gagnrýninni kenningu og inngildingu.

Salamanca-yfirlýsingin hafði áhrif á skólastarfið

Valgerður rakti hluta þróunarinnar til Salamanca-ráðstefnunnar á Spáni árið 1994. Þar hafi verið samþykkt yfirlýsing sem þátttakendur áttu síðan að fara með heim og fylgja eftir.

Hún sagði þátttakendur ekki hafa gert sér grein fyrir því hvaða stefnu þeir væru að samþykkja. Yfirlýsingin hafi síðan tekið breytingum næstu 20 árin og haft mikil áhrif á íslenskt skólastarf.

Áhrif Salamanca-yfirlýsingarinnar væru svo umfangsmikil að þau verðskulduðu sérstaka umfjöllun.

Kynlífsfræðsla hluti af sömu þróun

Valgerður sagði ofbeldis- og kynlífsfræðslu í skólum vera hluta af sömu hugmyndafræðilegu þróun.

Valgerður vék síðar að því að börn fengju ákveðnar hugmyndir mjög snemma í leik- og grunnskólakerfinu meðan foreldrar vissu ekki alltaf hvað þeim væri kennt eða hvaðan hugmyndirnar kæmu.

Alþjóðavæðingin komin inn í skólana

Valgerður nefndi einnig að allir grunnskólar í Kópavogi væru UNICEF-skólar og að sum sveitarfélög væru með UNESCO-skóla.

Þar vaknaði spurningin um hvað slík þátttaka fæli í sér og hvaða stefna fylgdi alþjóðlegum verkefnum inn í íslenska skóla.

Hún benti jafnframt á inngildingu og önnur hugtök sem hefðu komið inn í stjórnkerfið og skólastarfið. Uppruni þeirra, merking og hugmyndafræðilegur bakgrunnur þyrfti að vera skýr áður en þau væru tekin upp sem sjálfsagður hluti starfseminnar.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila