
Um helgina er Íslendingum boðið að taka þátt í Alþjóðlega Diskósúpudeginum, sem er hluti af alþjóðlegu átaki Slow Food samtakanna til að draga úr matarsóun. Viðburðirnir fela í sér súpueldun úr hráefni sem annars hefði verið hent, og eru gestum og gangandi boðin ókeypis matargleði með samfélagslegum tilgangi.
Þrír viðburðir víðsvegar um landið
Stórhóll í Skagafirði – laugardagur 26. apríl kl. 12:00–15:00
Diskósúpa verður elduð við Rúnalist Gallerí á Stórhóli. Þar verður einnig hægt að kynnast vörum frá smáframleiðendum á svæðinu og heilsa upp á nýfædd kið og hvolpa.
https://www.facebook.com/events/1716380582290842
Reykholt í Bláskógabyggð – laugardagur 26. apríl kl. 11:00–17:00
Í samstarfi við Social Coffee og Stóra Plokk Daginn fer viðburður fram í Reykholti. Þar fá gestir rjúkandi Diskósúpu í verðlaun fyrir að taka þátt í hreinsun umhverfisins.
https://www.facebook.com/events/2020326891825504
Breiðholt í Reykjavík – sunnudagur 27. apríl kl. 11:30–13:00
Diskósúpuviðburður fer fram í Jafnaseli í Breiðholti í tengslum við setningu Stóra Plokk Dagsins. Slow Food samtökin taka þátt með plokkara og súpu í farteskinu.
https://www.facebook.com/events/569400712870926
Súpa með tilgang: Hvað er Diskósúpa?
Hugmyndin að Diskósúpu kviknaði árið 2012 í Berlín þegar hópur ungs fólks innan Slow Food samtakanna safnaði hráefni sem var á leið í ruslið, eldaði úr því súpu og bauð almenningi til veislu með plötusnúðum og eldhúspartýi. Þar mættu um 8000 manns og hugmyndin dreifðist víða um heim.
Matarsóun: Umhverfisvandi sem hægt er að leysa
Í tilkynningu um viðburðinn segir að matarsóun sé alvarlegt vandamál á heimsvísu og að um þriðjungur allra matvæla endi í ruslinu. Hún er talin bera ábyrgð á 8–10% losunar gróðurhúsalofttegunda, auk þess sem hún veldur sóun á vatni, orku og vinnuafli. Með Diskósúpunni er verið að vekja athygli á málinu á jákvæðan, skapandi og samfélagslega tengdan hátt – með súpu sem tæki til breytinga.
