
Dómsmálaráðuneytið hefur undirritað samning við Alþjóðafólksflutningastofnunina (IOM) sem felur í sér að DNA-sýnataka verði framkvæmd áður en dvalarleyfi er veitt í ákveðnum málum sem varða fjölskyldusameiningu. Samningurinn nær einnig til aðstoðar við afhendingu ferðaskilríkja til umsækjenda. Samkvæmt dómsmálaráðuneytinu er markmiðið að staðfesta fjölskyldutengsl áður en dvalarleyfi er veitt og færa framkvæmdina nær því sem tíðkast annars staðar á Norðurlöndum.
Fjölskyldutengsl staðfest áður en fólk kemur til landsins
Hingað til hafa íslensk stjórnvöld almennt ekki látið framkvæma DNA-rannsóknir áður en dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar er veitt.
Þegar umsækjendur hafa komið frá ríkjum þar sem opinber gögn eru talin óáreiðanleg, skráning ófullnægjandi eða fölsun skjala algeng hefur Útlendingastofnun stundum veitt dvalarleyfi með þeim fyrirvara að DNA-rannsókn færi fram eftir komu til Íslands.
Með nýja samningnum verður unnt að framkvæma slíkar rannsóknir áður en umsækjendur ferðast til landsins.
Komið hafa upp mál þar sem fjölskyldutengsl reyndust ekki vera fyrir hendi
Að sögn ráðuneytisins hafa á undanförnum árum komið upp nokkur mál þar sem DNA-rannsóknir eftir komu barna til Íslands leiddu í ljós að þau voru ekki líffræðilega skyld þeim sem sagðir voru foreldrar þeirra.
Slík mál hafa kallað á flókna málsmeðferð þar sem stjórnvöld hafa þurft að meta hagsmuni barnanna og tryggja þeim viðeigandi umsjá hér á landi.
Á að auðvelda umsækjendum ferð til Íslands
Samningurinn á einnig að leysa úr vanda sem skapast hefur í ríkjum þar sem Ísland rekur hvorki sendiráð né ræðisskrifstofu. Þar hefur reynst erfitt að taka DNA-sýni og afhenda bráðabirgðaferðaskilríki eða vegabréfsáritanir til einstaklinga sem hafa fengið dvalarleyfi.
Heildarkostnaður samningsins nemur um 505 þúsund evrum, eða um 72,7 milljónum króna. Hann gildir til loka árs 2028 og verður Útlendingastofnun tengiliður íslenskra stjórnvalda við IOM um framkvæmd einstakra mála.
