
Dómsmálaráðuneytið hefur hafið umfangsmikið úttektarverkefni sem nær til þeirra 39 fagstofnana sem heyra undir ráðuneytið. Markmiðið er að fara yfir fjármál, verklag, skipulag, upplýsingamiðlun, samskipti og eftirlit ráðuneytisins með stofnununum. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra kynnti minnisblað um verkefnið á ríkisstjórnarfundi fyrir helgi.
Útlendingastofnun og Fangelsismálastofnun fyrst
Fyrstu úttektirnar eru þegar hafnar hjá Útlendingastofnun og Fangelsismálastofnun. Samkvæmt ráðuneytinu er markmiðið að þróa nýtt tæki til gæðastjórnunar sem styrki stjórnunar- og eftirlitshlutverk ráðherra gagnvart stofnunum ráðuneytisins.
Við úttektirnar verður meðal annars skoðað hvað gangi vel í starfseminni, hvað megi bæta og hvort tilefni sé til að endurskoða forgangsröðun eða verklag innan stofnananna.
Vilja bæta upplýsingaflæði og skilvirkni
Einnig verður lögð áhersla á að skilgreina betur hvaða upplýsingum stofnanir eigi að skila til ráðuneytisins og hvernig hægt sé að einfalda þá upplýsingagjöf. Ráðuneytið segir að niðurstöður verkefnisins verði nýttar til að bæta verklag, auka skilvirkni og styðja við nýja framkvæmd í stjórnsýslunni. Þegar niðurstöður liggja fyrir verður jafnframt metið hvernig hægt sé að nýta þær sem grunn að endurbættum samskiptum milli ráðuneytisins og stofnananna.
Segir verkefnið hluta af hagræðingu ríkisins
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir verkefnið falla að markmiðum ríkisstjórnarinnar um einfaldari og skilvirkari stjórnsýslu.
„Eitt af forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar er að hagræða og einfalda stjórnsýsluna. Það getur líka þýtt að fá betri þjónustu fyrir sama pening. Við viljum fá betri yfirsýn til þess að styðja áfram vel við okkar stofnanir í þeirra vandasömu verkefnum. Þetta eru góð skref til þess og jákvætt fyrir alla,“ segir hún.
