
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt fyrstu fjóra kafla draga að leiðbeiningum Raforkueftirlitsins um framkvæmd ákvæða raforkulaga sem varða viðskipti á heildsöluorkumarkaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Samkvæmt tilkynningunni er leiðbeiningunum ætlað að stuðla að samræmdri túlkun þeirra reglna sem gilda um viðskipti á heildsöluorkumarkaði og skýra hvernig Raforkueftirlitið hyggst beita þeim við eftirlit. Við gerð þeirra hafi meðal annars verið stuðst við leiðbeiningar Samstarfsstofnunar orkueftirlitsaðila í Evrópu (ACER) um framkvæmd REMIT-regluverksins, með hliðsjón af íslenskri löggjöf og sérstöðu íslenska raforkumarkaðarins.
Fjallað um innherjaupplýsingar
Í tilkynningu ráðuneytisins segir að í þessum fyrsta áfanga sé meðal annars fjallað um gildissvið ákvæða raforkulaga um heildsöluorkumarkað, skilgreiningar á innherjaupplýsingum, skyldur markaðsaðila til að birta slíkar upplýsingar opinberlega og bann við innherjasvikum og ólögmætri miðlun innherjaupplýsinga.
Þar kemur jafnframt fram að leiðbeiningarnar skýri hvaða aðilar falli undir reglurnar, hvað teljist til heildsöluorkuafurða og hvernig meta skuli hvort upplýsingar séu nægjanlega tilgreindar og líklegar til að hafa áhrif á verð á markaðnum. Einnig sé fjallað um kröfur um tímanlega birtingu innherjaupplýsinga og við hvaða aðstæður heimilt geti verið að fresta birtingu þeirra.
Veita leiðsögn um gildandi reglur
Ráðuneytið tekur fram að leiðbeiningarnar feli ekki í sér nýjar lagaskyldur umfram þær sem leiða af raforkulögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem sett hafa verið á grundvelli þeirra. Þeim sé ætlað að veita markaðsaðilum og öðrum sem reglurnar varða nánari leiðsögn um túlkun og framkvæmd gildandi reglna.
Samkvæmt tilkynningunni verða fleiri kaflar leiðbeininganna birtir í samráði í áföngum eftir því sem vinnu við þá miðar áfram.
Smelltu hér til þess að skoða málið í samráðsgátt.
