
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Arnar Þór Jónsson, lögmann og fyrrverandi héraðsdómara, í síðdegisútvarpinu í dag,um samstarf Íslands og Úkraínu um dróna í hernaðartilgangi. Arnar spurði hvaða umboð Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. utanríkisráðherra hefði til að skrifa undir slíkt samkomulag í nafni þjóðar sem lengi hefði skilgreint sig sem herlausa. Arnþrúður sagði málið hafa farið lágt og fréttir af því hefðu borist í gegnum úkraínska fjölmiðla. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Lítið sagt frá samkomulaginu hér heima
Samkomulagið var samþykkt þegar utanríkisráðherra Úkraínu kom til Íslands síðastliðinn laugardag og markmiðið sagt vera að undirrita samning fljótlega. Arnþrúður sagði lítið hafa komið fram um málið á vef Stjórnarráðsins og fréttir af því sem hefði farið fram hefðu borist í gegnum úkraínska fjölmiðla um nóttina.
Hún sagðist ekki hafa heyrt að þingmenn almennt hefðu vitað af málinu og óljóst væri hversu mikið það hefði verið rætt á Alþingi.
Málið væri engu að síður grafalvarlegt enda snerist það um þátttöku Íslands í samstarfi sem tengdist drónum í hernaðartilgangi.
„Er þetta einhver einkavegferð Þorgerðar Katrínar?“
Arnar gagnrýndi að utanríkisráðherra gæti samþykkt slíkt samkomulag án þess að skýrt lægi fyrir hvernig umboði ráðherrans væri háttað.
Hann spurði hvort um væri að ræða „einkavegferð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur“ og benti sérstaklega á að ákvörðunin væri tekin í nafni íslensku þjóðarinnar.
Ísland hefði þar til nýlega lagt áherslu á stöðu sína sem herlaus þjóð og því væri stórt skref ef landið færi að taka þátt í samstarfi sem gæti falið í sér framleiðslu eða þróun hernaðardróna.
Óljóst hversu langt samstarfið nær
Arnþrúður tók fram að rætt væri um að Íslendingar framleiddu, eða tækju þátt í framleiðslu á, drónum með Úkraínumönnum en sagði jafnframt óljóst hvernig málið væri nákvæmlega vaxið. Stefnt væri að því að ljúka samningi fljótlega hefði utanríkisráðherra sagt s.l. laugardagskvöld.
Því liggi ekki skýrt fyrir hversu umfangsmikið samstarfið verður, hvaða íslenskir aðilar koma að því eða hvort hér verður um beina framleiðslu að ræða.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
