EES-samningurinn hefur gengið miklu lengra en upphaflega stóð til

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Harald Ólafsson, formann Heimssýnar og prófessor í veðurfræði við Háskóla Íslands, í síðdegisútvarpinu, um þróun EES-samningsins og þær breytingar sem orðið hafa frá því Ísland gekk inn í samstarfið. Haraldur sagði samninginn hafa gengið miklu lengra en upphaflega stóð til og nefndi sérstaklega orkumál, bókun 35 og aukin áhrif reglna Evrópusambandsins á íslenska löggjöf. Hann sagði kominn tíma til að skoða samband Íslands við Evrópuríkin upp á nýtt og finna einfaldari og eðlilegri farveg. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Bókun 35 nýjasta skrefið

Haraldur sagði ríkisstjórnina og Evrópusambandið nú færa Ísland sífellt nær sambandinu í gegnum EES-samninginn. Bókun 35 væri eitt skýrasta dæmið og spurningin væri hvað kæmi næst.

Arnþrúður benti á að frá upphafi EES-samningsins hefði verið gert ráð fyrir því hvernig bregðast ætti við þegar íslensk lög og EES-reglur rækjust á. Alþingi hefði samþykkt lögin um evrópska efnahagssvæðið, þar sem fram kemur að íslenskum dómstólum hefði verið gert að hafa hliðsjón af ESB-reglum og taka mið af þeim þar sem við ætti og þannig hefði kerfið starfað um árabil.

Annað mál væri að veita EES-reglum algjöran forgang gagnvart íslenskum lögum. Þar væri farið mun lengra en áður.

Haraldur sagði bókun 35 ganga gegn stjórnarskránni og það væri ástæðan fyrir því að hún hefði ekki verið innleidd með þessum hætti þegar EES-samningurinn var gerður fyrir rúmum 30 árum. Ef menn vildu fara þá leið yrðu þeir að horfast í augu við stjórnarskrárspurninguna.

Orkumálin dæmi um hversu langt samningurinn hefur teygt sig

Haraldur nefndi orkumálin sérstaklega þegar hann lýsti því hversu langt EES-samstarfið hefði þróast frá upphaflegum forsendum.

Það hefði aldrei staðið til þegar samningurinn var gerður að Evrópusambandið fengi áhrif á íslensk orkumál í þeim mæli sem síðar varð. Þarna væri komið inn á svið sem hefðu ekki verið hluti af þeirri mynd sem Íslendingum var kynnt þegar samningurinn var upphaflega gerður.

Hann sagði því nauðsynlegt að staldra við og spyrja hversu langt samstarfið ætti að ganga.

Hver fer með löggjafarvaldið?

Arnþrúður sagði kjarna málsins vera spurninguna um hver réði og hver færi með löggjafar- og dómsvald á Íslandi. Ef slíkt vald færðist frá Alþingi, forseta Íslands og íslenskum dómstólum væri komið að grundvallaratriðum stjórnskipunarinnar.

Fram kom í máli Haraldar að ekki gengi upp að fleiri en einn aðili færi með löggjafarvald á Íslandi. Ríki gætu átt mjög umfangsmikið og farsælt samstarf, þar á meðal frjáls viðskipti, án þess að taka upp lög hvers annars í þeim mæli sem gerst hefði innan EES.

Hann benti jafnframt á að jafnvel innan Evrópusambandsins væru ríki farin að kalla eftir einfaldara regluverki vegna þess hversu umfangsmikið það væri orðið.

„Sætið við borðið“ vegur lítið

Arnþrúður tók einnig upp þá miklu áherslu sem lögð var á það í kosningabaráttunni að Ísland þyrfti „sæti við borðið“. Hún benti á að staðan innan Evrópusambandsins hefði breyst verulega frá því EES-samningurinn var gerður, meðal annars með Lissabon-sáttmálanum.

Áður hefði einróma samþykki ríkja vegið mun þyngra en nú réðu meirihlutaákvarðanir á fleiri sviðum. Því væri ekki hægt að tala um sæti við borðið eins og Ísland fengi þar afgerandi áhrif.

Haraldur sagði slíkt sæti hafa haft töluvert meira vægi þegar þessi mál voru rædd fyrir áratugum en nú væri vægið lítið eða nánast ekkert. Hann sagði sömu þróun eiga við um neitunarvald Íslands samkvæmt EES-samningnum, sem væri að hans sögn lítils virði ef afleiðingin af því að beita því væri þrýstingur eða aðgerðir gegn Íslandi.

Tími til að endurskoða EES-samstarfið

Þá sagði Haraldur ástæðu til að taka EES-samninginn til endurskoðunar. Hann vísaði meðal annars til þess að Ísland ætti önnur dæmi um fríverslunarsamninga og að stór hluti þess tollfrelsis sem eignað hefði verið EES-samningnum byggðist einnig á öðrum og eldri alþjóðlegum samningum.

Eftir rúmlega 30 ára þróun væri því tímabært að skoða hvaða hlutar EES-samstarfsins væru raunverulega nauðsynlegir og hvort hægt væri að koma samskiptum Íslands við Evrópuríkin í einfaldari farveg.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila