
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Arnar Þór Jónsson, lögmann og fyrrverandi héraðsdómara, í síðdegisútvarpinu um þróun EES-samningsins frá því hann tók gildi. Arnar sagði samninginn hafa verið viðskipta- og markaðssamning en að hann hefði á rúmum 30 árum umbreyst í pólitískt og lagalegt samband við Evrópusambandið sem næði nú inn á sífellt fleiri svið íslensks samfélags. Arnþrúður spurði afhverju við Íslendingar ættum að láta erlenda aðila setja lög fyrir okkur í fullalda landi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Þúsundir skuldbindinga innleiddar í íslenskan rétt
Á 33 árum hefði Alþingi innleitt þúsundir skuldbindinga í íslenskan rétt. Ferlið hefði orðið svo umfangsmikið að enginn einn maður gæti lengur haft yfirsýn yfir allt það regluverk sem Ísland hefði tekið upp í gegnum samninginn.
Arnar lýsti þessu sem vélrænni færibandaafgreiðslu þar sem í sífellt fleiri málum væri gengið út frá því að ákvörðun hefði þegar verið tekin annars staðar og íslensk stjórnvöld ættu aðeins eftir að innleiða hana.
Reglurnar eiga að vera settar nær fólkinu
Arnþrúður tók upp spurninguna um frelsi og sjálfsákvörðun og spurði hvort Íslendingar væru að kasta frá sér frelsinu til að láta eigin kjörna fulltrúa setja lög sem tækju mið af íslenskum aðstæðum.
Arnar líkti stöðunni við það ef bæjarfulltrúar í Rangárþingi eystra ættu að setja allar reglur um hafnir, fiskveiðieftirlit og aðra starfsemi á Ísafirði eða Patreksfirði þótt þeir þekktu ekki staðbundnar aðstæður þar.
Reglur sem fólk þarf að lifa eftir ættu að vera settar af þeim sem þekkja samfélagið, aðstæður þess og hagsmuni. Þegar ákvarðanir færist til fjarlægra valdamiðstöðva flytjist bæði völd og fjármunir frá þeim samfélögum sem reglurnar gilda um.
Afhverju eigum við að láta erlenda aðila setja lög í okkar landi með fullveldi
Arnar sagði íslensk stjórnmál hafa farið á eins konar sjálfstýringu vegna EES-samningsins. Með tímanum hefði athyglin færst yfir á aukaatriði en grundvallarspurningin um fullveldi orðið minna áberandi.
Arnþrúður spurði hvers vegna Íslendingar ættu að sætta sig við að erlendir aðilar semdu reglur fyrir landið í skiptum fyrir fríviðskipti og tollfrelsi, í landi þar sem við hefðum alfarið fullveldi. Sérstaklega þegar reglurnar hentuðu ekki endilega íslenskum aðstæðum.
Arnar sagði þjóðaratkvæðagreiðsluna í sumar hafa haft þau áhrif að fullveldið færðist aftur í miðju stjórnmálaumræðunnar. Framtíð Íslands stæði og félli með því hvort þjóðin héldi fullveldi sínu og möguleikanum til að setja eigin lög.
Samningurinn teygir sig sífellt lengra
EES-samningurinn hefði á rúmum 30 árum teygt sig svo víða inn í íslenskt lagaumhverfi að staðan væri gjörbreytt frá því sem samið var um í upphafi.
Arnar sagði því nauðsynlegt að Íslendingar héldu sjálfir um beislin ef þeir ætluðu að hafa stjórn á eigin málum. Það væri ekki nóg að líta áfram á EES sem hefðbundinn viðskiptasamning þegar áhrif hans næðu orðið svo djúpt inn í löggjöf, stjórnsýslu og pólitíska ákvarðanatöku.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
