EES-samningurinn úreltur og það þarf að segja honum upp

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Ólafsson, hagfræðing og stærðfræðing, í síðdegisútvarpinu í dag, um EES-samninginn, bókun 35 og stöðu Íslands gagnvart Evrópu. Guðmundur sagði EES-samninginn úreltan, hann stórskaða Ísland og kominn væri tími til að segja honum upp. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Vill endurskoða 30 ára samning

Arnþrúður vísaði til fréttar um að ESA hygðist fara með mál Íslands fyrir EFTA-dómstólinn vegna bókunar 35 og teldi Ísland ekki hafa staðið við skuldbindingar sínar.

Guðmundur sagði kominn tíma til að endurskoða EES-samninginn sem hefði verið við lýði í um 30 ár. Að hans mati væri samningurinn orðinn úreltur og skaðaði bæði Ísland og önnur EES-ríki.

Hann nefndi Noreg sérstaklega og sagði þar einnig vera uppi þá afstöðu að tímabært væri að segja samningnum upp.

EFTA ætti að duga Íslandi

Guðmundur sagðist hafa fengið upplýsingar frá Friðriki Hansen Guðmundssyni, um stöðu Íslands gagnvart EES. Af þeim drægi hann þá ályktun að Íslandi nægði að vera innan EFTA og styrkja stöðu sína þar.

Arnþrúður tók undir að skoða þyrfti þá leið og benti á að Ísland hefði fríverslunarsamninga í gegnum EFTA. Því væri ekki sjálfgefið að landið hefði jafn miklu að tapa á því að breyta núverandi fyrirkomulagi og oft væri látið í veðri vaka.

Guðmundur vildi jafnframt vita hvernig Jón Baldvin Hannibalsson, sem kom að gerð EES-samningsins, liti á þá stöðu sem nú væri komin upp.

Guðmundur vill segja EES samningnum upp

Arnþrúður gagnrýndi þá þróun sem hún sagði felast í sífellt meiri kröfum gagnvart Íslandi og kostnaði við aðgang að Evrópumarkaði.

Ef sú þróun héldi áfram þyrfti Ísland að hennar mati, að horfa í aðrar áttir og finna fleiri markaði fyrir íslenskar vörur.

Hún sagði málið snúast um pólitíska stöðu Íslands og þjóðin ætti ekki að láta þvinga sig. Um bókun 35 hefði þegar verið fjallað ítarlega á Útvarpi Sögu, meðal annars um aðdraganda hennar, lagalega stöðu Íslands og þær reglur sem giltu.

Guðmundur hélt fast við að núverandi fyrirkomulag væri ekki lengur Íslandi fyrir bestu. Í stað þess að halda óbreytt áfram innan EES ætti að hans mati að segja samningnum upp og byggja frekar á aðild Íslands að EFTA.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila