Ef stjórnvöld ætla að innleiða heimsyfirráðastefnu er það ávísun á ófrið í landinu

Það er ávísun á ófrið ef stjórnvöld hér ætla að koma hér á landi einhverri heimsyfirráðastefnu erlendis frá. Þetta segir Logi Kjartansson lögmaður en hann ásamt Leifi Árnasyni flugstjóra var gestur Valgerðar Jónsdóttur í Menntaspjallinu.

Stjórnvöld og dómstólar verða að sýna gott fordæmi

Logi segir að það sé algerlega ljóst að ef hér eigi að ríkja stöðugleiki í samfélaginu þá sé fyrir það fyrsta kominn tími til þess að virða þau lög og reglur sem gildi í landinu svo ekki sé nú talað um stjórnskrána. Það sé mikilvægt að stjórnvöld og dómstólar sýni þar gott fordæmi og gangi ekki fram með þeim hætti að lög og regla séu ekki virt nema að eigin geðþótta.

Hvað er verið að innleiða nú þegar

Það þýði heldur ekkert að stjórnvöld ætli sér að koma hér að hugmyndum úr þeirri heimsyfirráðastefnu sem er meðal annars runnin undan rifjum World Ecconomic Forum, WHO og þá einnig Sameinuðu þjóðunum sem hafa sent frá sér hin umdeildu heimsmarkmið.

Sóttvarnarfrumvarpið byggir á kröfu frá WHO

Þetta gildi til dæmis um sóttvarnarfraumvarpið sem nú bíði afgreiðslu Alþingis en þau sóttvarnarlög eru augljóslega byggð á hinum umdeilda farsóttarsáttmála WHO enda beri ákvæði í efni frumvarpsins mjög með sér ákveðna samræmingu í frumvarpinu við farsóttarsáttmálann.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila