Efna til málstofu um skipulag og náttúruvá

Skipulagsstofnun ætlar að efna til málstofu þann 2. maí næstkomandi þar sem fjallað verður um skipulagsmál og náttúruvá.

Á málstofunni verður rætt meðal annars um skipulagsgerð sem sé mikilvægur vettvangur til þess að takast á við þær áskoranir sem fylgja náttúruvá hvort sem er af völdum eldsumbrota eða annarra þátta í náttúru- og veðurfari.

Fram kemur í tilkynningu að á síðustu misserum hafi atburðir sem tengjast náttúruvá sett svip á íslenskt samfélag og nægi þar að nefna jarðhræringar á Reykjanesskaga á undanförnum árum. Á fundinum verður farið yfir sviðið frá ýmsum hliðum.

Fjallað verður meðal annars um vinnu við gerð áhættumats vegna eldgosahættu og öðrum atburðum, s.s. vatnsflóðum og ofanflóðum og hvaða lærdóm má draga af viðbrögðum ríkis og sveitarfélaga við eldsumbrotum á Reykjanesi fyrir skipulagsgerð til framtíðar.

Málstofan fer fram sem fyrr segir 2.maí næstkomandi í húsakynnum Skipulagsstofnunar í Borgartúni 7B og stendur frá klukkan 9 til 11.

Dagskrá

Ólafur Árnason, Skipulagsstofnun Opnunarávarp
Sigrún Karlsdóttir, Veðurstofa Íslands Staða vinnu við mat á náttúruvá
Bergrún Arna Óladóttir, Veðurstofa Íslands Eldfjallavá og hættumat henni tengt Dæmi frá Reykjanesskaga
Hafsteinn Pálsson, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti Stefnumörkun um áhættumat vegna náttúruvár
Reynir Sævarsson, Efla Vernd innviða og viðbrögð við eldsumbrotum á Reykjanes – Samtengingar hitaveitukerfa til aukins orkuöryggis
Jón Kjartan Ágústsson, SSH Sjónarhorn sveitarfélaga þegar kemur að skipulagi í skugga náttúruvár

Húsið opnar 8.30. Heitt á könnunni.

Rétt er að benda þeim sem hafa áhuga á að koma á málstofuna að skráningarblað má nálgast með því að smella hér.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila