
Kristján Örn Elíasson ræddi við Björn Þorfinnsson, alþjóðlegan skákmeistara, Gunnar Frey Rúnarsson formann Víkingaklúbbsins, Sigurð Þórðarson, skákáhugamann og Hauk Hauksson fréttamann í þættinum Við skákborðið um stöðu íslenskrar skákar og þá ungu kynslóð sem nú sækir fram. Sérstaka athygli vakti 8 ára Helgi Fannar Óðinsson sem vann opna flokkinn á Haustmóti Taflfélags Reykjavíkur. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Aðeins 8 ára og vann opna flokkinn
Björn sagði stórtíðindi hafa orðið í opna flokki Haustmótsins þegar Helgi Fannar vann flokkinn með sannfærandi hætti aðeins 8 ára gamall.
Hann lýsti Helga Fannari sem gríðarlegu góðum skákmanni og sagði það alltaf vekja sérstaka athygli í skákheiminum þegar svo ungir og efnilegir krakkar brjótast fram.
Kristján lagði áherslu á hversu óvenjulegur árangurinn væri. Helgi Fannar væri aðeins 8 ára en settist engu að síður að borði gegn mun eldri andstæðingum og ynni þá.
Jósef vann A-flokkinn með 8½ vinning
Fleiri ungir skákmenn vöktu athygli á mótinu. Jósef Omarsson vann lokaða A-flokkinn með 8½ vinning af 9 mögulegum. Björn sagði Jósef lengi hafa verið talinn mjög efnilegan en að hann hefði eiginlega sprungið út á þessu móti. Árangurinn skilaði honum jafnframt miklu stökki á stigalistanum.
Frammistaða þeirra beggja varð tilefni til umræðu um hvort ný kynslóð íslenskra skákmanna væri að taka við.
Íslensk skák hefur dalað síðustu 20 ár
Kristján benti á að íslensk skák hefði lengi lifað á mikilli sögu og nefndi meðal annars Friðrik Ólafsson, Jóhann Hjartarson, Margeir Pétursson, Jón L. Árnason, Helga Ólafsson og Guðmund Sigurjónsson.
Síðustu 20 ár hefði þróunin hins vegar verið niður á við. Meðalstyrkur íslenskra skákmanna hefði lækkað um nálægt 80 stig og uppbyggingin ekki skilað sér eins vel og vonir stóðu til.
Gunnar tók undir að lægð hefði verið í íslenskri skák en sagði yngri kynslóðina lofa góðu. Vignir Vatnar Stefánsson og Hilmir Freyr Heimisson hefðu tekið miklum framförum og fleiri ungir skákmenn væru að fylgja á eftir.
Krakkarnir hverfa oft úr skákinni á unglingsárunum
Kristján sagði íslenska krakka aftur og aftur ná góðum árangri á Norðurlandamótum, bæði stráka og stelpur. Vandinn kæmi gjarnan síðar.
Þegar þau yrðu 15, 16, 17 eða 18 ára breyttust áherslurnar og hluti þeirra hyrfi úr skákinni. Aðrar íþróttir og áhugamál tækju við og ekki hefði tekist nægilega vel að halda utan um efnilegustu skákmennina.
Hann sagði nú vera fyrir hendi einstaklega spennandi hóp ungra skákmanna, bæði stráka og stelpna. Stóra spurningin væri hvernig íslenska skákhreyfingin næði að vinna úr þeim efniviði og skapa skilyrði fyrir krakkana til að halda áfram að bæta sig.
Sigur Helga Fannars á Haustmóti TR væri skýrt dæmi um þann efnivið sem nú væri að koma fram.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
