Eftirlitskerfið með nýbyggingum virkar ekki sem skyldi

Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Stefán Hrafn Jónsson, prófessor í félagsfræði, við Háskóla Íslands og Ævar Harðarson arkitekt, í þættinum Skipulagsmál, um eftirlit með byggingu nýs húsnæðis. Stefán Hrafn sagði kerfið sem á að tryggja gæði bygginga ekki virka sem skyldi og benti á að byggingarstjóri sem sinnir eftirliti fái greitt frá þeim sem byggir húsið. Ævar sagði byggingarstjórakerfið hafa virkað illa á íbúðamarkaði enda væru byggingarstjórar oft í vinnu hjá seljandanum en ekki endanlegum kaupanda húsnæðisins. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Kaupandinn verður að geta treyst eftirlitinu

Stefán Hrafn sagði kaupanda húsnæðis ekki geta vitað hvernig staðið var að framkvæmdum við bygginguna. Þess vegna yrði fólk að geta treyst því kerfi sem samfélagið hefur komið á, til að tryggja að hús séu rétt byggð. Kaup á húsnæði væru oft stærsta fjárfesting fólks á lífsleiðinni en rannsóknin benti til þess að eftirlitskerfið virkaði ekki sem skyldi.

Hann bar fyrirkomulagið saman við bílamarkaðinn. Miklar kröfur væru gerðar til framleiðslu og innflutnings bíla og síðan færi fram reglubundin skoðun hjá faggiltum aðilum sem væru óháðir framleiðendum, umboðum og seljendum. Sama óhæði væri ekki fyrir hendi við byggingarframkvæmdir.

Byggingarstjórinn fær greitt frá byggingaraðilanum

Eftirlitið er meðal annars falið byggingarstjóra sem fær laun frá þeim sem stendur að byggingunni. Stefán Hrafn sagði þetta þýða að eftirlitið væri ekki óháð.

Erfitt gæti verið fyrir byggingarstjóra að stöðva verkefni og krefjast þess að notuð væru betri efni eða aðrar lausnir. Ef hann gengi gegn þeim sem greiddi honum fyrir verkefnið gæti staða hans orðið erfið.

Ævar tók undir að byggingarstjórakerfið hefði virkað illa, sérstaklega á íbúðamarkaði. Byggingarstjórarnir væru í mörgum tilfellum í vinnu hjá seljandanum og væru því ekki sérstaklega ráðnir til að gæta hagsmuna endanlegs notanda eða neytandans.

Gallarnir geta fallið milli skips og bryggju

Ævar sagði byggingarfulltrúa vissulega framkvæma úttektir á ákveðnum verkþáttum en eftirlitið næði ekki endilega til þeirra staða þar sem algengir gallar kæmu síðar fram.

Sem dæmi væri steypa tekin út á ákveðnu stigi framkvæmdarinnar. Gallar kæmu hins vegar gjarnan fram í viðkvæmum samskeytum, til dæmis þar sem gluggar mæta útveggjum eða þar sem þak og aðrir byggingarhlutar tengjast saman. Þegar kæmi að slíkum atriðum gæti eftirlitið fallið milli skips og bryggju.

Breytingar á byggingarstjórakerfinu í farvatninu

Ævar sagði tillögur hafa verið til skoðunar um verulegar breytingar á mannvirkjalöggjöfinni þar sem byggingarstjórakerfið yrði lagt af í núverandi mynd og eftirlitið gert óháðara.

Stefán Hrafn sagði jafnframt mikilvægt að skoðun húsnæðis yrði framkvæmd af hæfum og óháðum aðilum. Sama grundvallarregla ætti að gilda þar og við skoðun bifreiða: sá sem byggir eða selur eigi ekki jafnframt að stjórna því eftirliti sem á að tryggja kaupandanum að varan standist kröfur.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila