Eignarhald, arðgreiðslur og gagnaver gætu verið deilumál hjá Landsvirkjun

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Ólafsson, hagfræðing og stærðfræðing, í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu í dag, um mögulegar ástæður starfsloka 2ja lykilstarfsmanna Landsvirkjunar. Guðmundur velti því upp hvort ágreiningur um raforkusölu til bandarískra og evrópskra gagnavera gæti legið að baki deilunni. Hann tók þó skýrt fram að þetta væri eigin tilgáta sem hann hefði ekki fengið staðfesta. Arnþrúður sagðist horfa til beytinga á eignarhaldi og arðgreiðslna þegar svona alvarlegur ágreiningur kæmi upp. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Raforkusala til gagnavera gæti skýrt ágreininginn

Guðmundur sagði Ísland hafa góða möguleika á að laða að gagnaver vegna aðgengis að raforku og kalds loftslags. Bæði bandarísk og evrópsk fyrirtæki sæktust eftir slíkri starfsemi en hann taldi bandarísku fyrirtækin standa mun framar á þessu sviði.

Hann velti því upp hvort fyrrverandi stjórnendur Landsvirkjunar hefðu viljað halda áfram samstarfi við bandarísk fyrirtæki á meðan ný stjórn hefði lagt áherslu á viðskipti við evrópska aðila.

Guðmundur sagðist hvorki hafa rætt þessa skýringu við aðila málsins né lesið gögn sem styddu hana. Hann taldi hana engu að síður hugsanlega skýringu á þeim rekstrarlega ágreiningi sem komið hefði upp.

2 lykilstarfsmenn hættu hjá Landsvirkjun

Guðmundur vakti athygli á því að ekki aðeins Hörður Arnarson forstjóri hefði látið af störfum heldur einnig yfirmaður fjármála fyrirtækisins til fjölda ára.

Hann taldi starfslok beggja benda til þess að ágreiningurinn hefði getað snúist um mikilvægar rekstrarákvarðanir fremur en persónuleg samskipti eða fundarsköp.

Daði benti á hið augljósa í Kastljósi í gær

Arnþrúður sagði að Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra hefði verið í Kastljósi í gærkvöldi og hefði í raun nefnt bæði umræðu um eignarhald og arðgreiðslur sem umræður sem hefðu átt sér stað á fundi án forstjóra. Hún sagði að þarna hefði þáttastjórnandi Kastljóss fengið kjörið tækifæri frá ráðherranum, að spyrja nánar útí hugsanlegar breytingar á eignarhaldi og sömuleiðis nýjar leiðir til að afla meiri arðgreiðslna en því miður hefði hann ekki spurt nánar. Guðmundur tók undir að það væri meginspurningin sem enn væri ósvarað.

Arðgreiðslur og eignarhald eru mikilvægustu atriðin

Arnþrúður sagði að hennar mati, væru arðgreiðslur, framkvæmdir og eignarhald mikilvæustu atriðin sem ný stjórn þurfi að bregðast við og hafa skýra sýn og stefnu í þeim málum. Hún velti því upp hvort stjórnvöld vildu auka arðgreiðslur til ríkissjóðs og nýta góða fjárhagslega stöðu fyrirtækisins til þess.

Hægt að skuldsetja Landsvirkjun verulega

Hún benti á að Landsvirkjun væri nánast skuldlaust fyrirtæki og í raun verðmætasta fyrirtæki landsins. Slík staða auðveldar verulega alla lántöku á mög góðum kjörum út um allan heim. Ef vilji væri fyrir hendi þá gæti Landsvirkjum tekið milljarða lán og aukið arðgreiðslur til ríkissjóðs til muna. Með því móti gæti ríkisstjórnin skilað hallalausum fjárlögum eins og stefnt væri að í fjárlögum. Þá væri líka í ESB umræðunni hugmyndir um að selja hluta Landsvirkjunar. Þessi mál eru til þess fallin að æra óstöðugan og geta auðveldað skapað deilur um ” stjórnunarhætti” svo ekki sé meira sagt sagði Arnþrúður.

Guðmundur dró hins vegar í efa að ágreiningur um hærri arðgreiðslur einn og sér skýrði starfslok stjórnendanna. Hann taldi ekki skynsamlegt að skipta um reynda stjórnendur ef meginmarkmiðið væri að auka tekjur fyrirtækisins.

Málið í rannsókn hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins

Guðmundur fagnaði því að Landsvirkjunarmálið hefði verið tekið til skoðunar hjá sérstakri þingnefnd. Hann vonaðist til að rannsóknin leiddi í ljós hvaða rekstrarlegu eða stefnumótandi atriði hefðu valdið ágreiningnum.

Arnþrúður tók undir að mikilvægt væri að fá skýringar sem fyrst vegna þeirrar óvissu sem hefði skapast um fyrirtækið.

Guðmundur ítrekaði að gagnaveraviðskiptin væru aðeins ein hugsanleg skýring. Án frekari upplýsinga væri ekki hægt að fullyrða hvers vegna ágreiningurinn hefði orðið svo alvarlegur að tveir lykilstarfsmenn létu af störfum.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila