Einar Júlíusson er látinn

Eitt helsta átrúnaðargoð unga fólksins á 7. árátugnum og stórsöngvarinn Einar Júlíusson, lést í faðmi fjölskyldunnar síðastliðna nótt.   Einar fæddist í Keflavík 20. ágúst 1944, hann bjó og starfaði þar alla tíð.  Einar byrjaði á barnsaldri að syngja, hann var einn af stofnefndum Hljóma og var fyrsti söngvari þeirra frægu hljómsveitar.  Hann átti síðan farsælan 23 ára ferill með hljómsveitinni „Pónik og Einar“. Á síðari árum lagði hann áherslu á einsöng, þar sem hann söng við ýmsar athafnir.  Einar söng á hljómplötu með Ellý Vilhjálmsdóttur og varð sú plata mjög vinsæll.  Fræg lög sem Einar söng voru til dæmis lögin „Brúnu ljósin brúnu“, „Léttur í Lundu“ og „Viltu dansa“.

Einar var tíður gestur í tónlistarþáttum á Útvarpi Sögu í gegnum tíðina þar sem hann meðal annars rifjaði upp ýmsar skemmtilegar sögur af ferli sínum. Hér að neðan má heyra þátt þar sem Einar var til viðtals í þættinum Gömlu góðu lögin með Magnúsi Magnússyni. Útvarp Saga vottar aðstandendum og vinum Einars Júlíussonar innilegrar samúðar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila